— AFP
Nautaat hefur verið stundað í Furjeriah, furstadæmi í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, um áratuga skeið. Nautaatið er haldið alla föstudaga.
Nautaat hefur verið stundað í Furjeriah, furstadæmi í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, um áratuga skeið. Nautaatið er haldið alla föstudaga. Það er mikill heiður í Furjeriah að sigra í nautaatinu og sum nautin eru sérstaklega ræktuð í þeim tilgangi að taka þátt í því. Viðburðurinn er vel sóttur af heimamönnum en dýraverndunarsinnar eru afar ósáttir við þessa hefð og segja hana skaðlega fyrir dýrin.