Stór augu. S-Allir
Norður | |
♠ÁG87 | |
♥3 | |
♦ÁG5 | |
♣KG1094 |
Vestur | Austur |
♠D4 | ♠10 |
♥ÁD97542 | ♥K10 |
♦KD103 | ♦76 |
♣-- | ♣ÁD876532 |
Suður | |
♠K96532 | |
♥G86 | |
♦9842 | |
♣-- |
Suður spilar 5♠ doblaða.
Boye Brogeland rak upp stór augu. Hann var sagnhafi í 5♠ dobluðum og fékk út ♦K frá Christian Bakke. Boye drap á ás og spilaði strax litlu laufi. Tor Eivind Grude í austur hafði aldrei nefnt áttlitinn í laufi á nafn og fylgdi sakleysislega lit með smáspili. Boye trompaði með spaðatvisti og Christian yfirtrompaði með fjarka! Menn hafa glennt upp glyrnurnar af minna tilefni. Framhaldið var óhjákvæmilegt: ♥Á, ♦D og stunga. Tveir niður.
Spilið er frá úrslitaleik norskra sveita – Crazies og Norway Juniors – í netmóti BSÍ á dögunum. Sami samningur vannst á hinu borðinu eftir útspil í trompi. Þar tók sagnhafi (hinn 14 ára Nicolai Heiberg-Evenstad) annað tromp og fríaði svo tvo slagi á lauf með trompsvíningu. Leikurinn var 56 spil og unnu „júníorarnir“ 119-106. Fjórði maðurinn í sveitinni skýrir gæsalappirnar, en það er Stian Evenstad, faðir Nicolais.