Áfall Sindri Már Finnbogason, stofnandi Tix, hefur náð góðum árangri með útrás fyrirtækisins. Sá árangur kostaði þó sitt og nú berst hann við að ná aftur fyrri styrk eftir að hafa fengið heilablóðfall í vinnuferð síðasta haust.
Áfall Sindri Már Finnbogason, stofnandi Tix, hefur náð góðum árangri með útrás fyrirtækisins. Sá árangur kostaði þó sitt og nú berst hann við að ná aftur fyrri styrk eftir að hafa fengið heilablóðfall í vinnuferð síðasta haust. — Morgunblaðið/Unnur Karen
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Viðtal Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Þetta hefur breytt mér gjörsamlega. Ég mun aldrei verða eins og ég var fyrir rúmum fjórum mánuðum,“ segir Sindri Már Finnbogason, stofnandi og aðaleigandi miðasölufyrirtækisins Tix.

Viðtal

Höskuldur Daði Magnússon

hdm@mbl.is

„Þetta hefur breytt mér gjörsamlega. Ég mun aldrei verða eins og ég var fyrir rúmum fjórum mánuðum,“ segir Sindri Már Finnbogason, stofnandi og aðaleigandi miðasölufyrirtækisins Tix.

Sindri hefur haldið sér til hlés síðustu mánuði eftir að hann fékk heilablóðfall við komuna til landsins úr vinnuferð í Englandi. Hann telur að ástæðan fyrir því að hann fékk áfallið sé sú að hann hann hafi unnið of mikið og ekki hlúð nægilega vel að sjálfum sér.

Eins og kom fram í Morgunblaðinu á dögunum kynnti Tix starfsemi sína á ráðstefnunni Intix í Flórída í Bandaríkjunum á dögunum. Fyrirtækið ætlar að hasla sér völl þar í landi og óhætt er að segja að það fari vel af stað því viðtökurnar á þessari ráðstefnu, sem er með þeim stærstu í miðasölugeiranum, voru frábærar. Sindri hélt fyrirlestur á ráðstefnunni sem mæltist mjög vel fyrir en þar greindi hann frá því að hann hefði nýverið fengið heilablóðfall og hvatti viðstadda til að forgangsraða rétt í sínu lífi og hugsa vel um sig. Af fjölmiðlaumfjöllun um ráðstefnuna má ráða að þessi einlægni hafi lagst vel í viðstadda.

„Ég og Íris konan mín ákváðum að fara til Orlando á sama tíma og ráðstefnan var, einfaldlega til að komast í frí. Við þurftum bæði á því að halda. Ég átti upphaflega að halda fyrirlestur þarna en vegna heilsufarsins á mér höfðum við ákveðið að annar kæmi í minn stað. Þegar hann svo komst ekki til Bandaríkjanna ákvað ég bara að láta slag standa. Við undirbúninginn fann ég að ég gæti ekki staðið þarna í 45 mínútur og talað um fyrirtækið eins og ekkert væri að. Ég gat einfaldlega ekki farið upp á svið án þess að segja frá minni lífsreynslu,“ segir Sindri.

16 tíma vinnudagar fjarri fjölskyldunni

Og það var nákvæmlega það sem hann gerði. Fyrirlesturinn byrjaði á stuttum inngangi um Tix en svo skipti hann um gír og varpaði upp ljósmynd af sér og pabba sínum sem lést fyrir rúmum sjö árum, skömmu áður en Tix.is fór fyrst í loftið. Sindri segir við Morgunblaðið að hann hafi rakið sína sögu og fyrirtækisins síðustu ár og greint frá því hversu mikið hann hafi unnið án þess að gera sér grein fyrir afleiðingunum. „Ég var vanur að færa strákunum mínum gjafir þegar ég kom heim úr vinnuferðum, sem þeir léku sér með í fimm mínútur en hentu svo frá sér. Í síðustu vinnuferðinni tók ég hins vegar Legókall með mér og tók myndir af honum þar sem ég kom við og sýndi strákunum. Þessar myndir sýndi ég í fyrirlestrinum og fólki fannst þetta greinilega sniðugt. Sama reyndar þegar ég endaði á fjölskyldumynd sem Íris konan mín gaf mér af okkur öllum í hlutverki Simpson-fjölskyldunnar fyrir framan sjónvarpið. Auðvitað var Kaninn hrifinn af því,“ segir Sindri.

Hann segir að skilaboðin með því að segja sögu sína hafi verið skýr. „Annars vegar að það er allt uppi á borðum hjá okkur en líka að hvetja fólk til að staldra aðeins við og íhuga hvort það ætti að breyta einhverju sjálft. Hvort sem það er í þeim rekstri sem það sinnir, ef kerfið er ekki að virka má alveg skipta um kerfi, en ekki síður í eigin lífi. Ég get vottað það sjálfur að það borgar sig ekki að ganga of nærri sér með vinnu. Þegar upp er staðið eru aðrir hlutir mikilvægari.“

Tix var stofnað árið 2014 og náði á skömmum tíma yfirburðastöðu á miðasölumarkaði hér á landi. Fljótlega var horft til þess að færa starfsemina út fyrir landsteinana og náði Tix fótfestu í Noregi, Danmörku, Færeyjum og Svíþjóð en síðar í Hollandi, Belgíu, Finnlandi og Bretlandi. Fyrir tveimur árum voru starfsmenn Tix 12 talsins en nú eru þeir 38 í átta löndum.

Útrásin tók sinn toll hjá Sindra sem dvaldi langtímum saman í útlöndum, gjarnan einn á hótelum og fjarri fjölskyldu sinni. Árið 2019 fór hann í yfir hundrað flugferðir og 2020 eyddi hann um 60 dögum í sóttkví vegna flugferða. „Þegar ég var búinn að koma öllu af stað á Norðurlöndunum kom ég heim og þurfti að fara að takast á við daglegu rútínuna meðfram vinnunni og það reyndist mér mjög erfitt. Ég fór því að leita að nýjum tækifærum og þau voru fyrir hendi í Hollandi. Í fyrra var ég fyrstu fjóra mánuði ársins í Hollandi að koma öllu af stað þar. Þá vann ég bókstaflega 16 tíma á dag að jafnaði, var kannski helming tímans á Zoom-fundum en hinn helminginn að sinna forritun og ýmsu öðru í starfsemi Tix. Þegar ég kom svo heim eftir þessa törn hélt ég áfram að vinna svona mikið. En þar sem ég þurfti að sinna fjölskyldunni fann ég bara annan tíma til að vinna, annaðhvort fram á nótt þegar allt var komið í ró eða eldsnemma á morgnana. Á endanum sá ég að ég þyrfti auðvitað að dreifa ábyrgðinni á fleiri en það reyndist mér samt erfitt að sleppa takinu.“

Fékk heilablóðfall í Leifsstöð

Síðasta haust var komið að landvinningum í Bretlandi og einnar nætur vinnuferð í lok september reyndist örlagarík. Sindri flaug út að morgni 29. september og eftir fundarhöld og fleira flaug hann aftur til Íslands frá Heathrow-flugvelli daginn eftir. „Ég man að ég var alveg búinn á því á flugvellinum. Ég talaði við Írisi og hún greinilega skynjaði það og benti mér á að þetta væri ekki skynsamlegt. Daginn eftir var sjö ára afmæli Tix og við ætluðum að fagna því með starfsfólkinu,“ segir Sindri sem kveðst hafa liðið ágætlega þegar vélin lenti á Íslandi. Áfallið hafi aftur á móti riðið yfir þegar hann gekk frá borði. Í rananum frá vélinni fann hann ærandi hávaða í höfðinu og þurfti að stoppa og ná áttum. Hann náði að komast inn í flugstöðvarbygginguna og þar komst meiri ró yfir hann. „Svo tókst mér einhvern veginn að komast í gegnum vegabréfaskoðunina. Starfsfólkið hlýtur að hafa haldið að ég væri drukkinn. Þegar ég kom niður stigann að fríhöfninni fann ég að ég væri ekki í neinu ástandi til að fara að keyra og gat á endanum gengið að tollverði og beðið um aðstoð. Hún sá greinilega að það var eitthvað mikið að og kallaði eftir læknishjálp,“ segir Sindri. Hann var fluttur á sjúkrahúsið í Keflavík og þaðan á bráðamóttöku Landspítalans. Daginn eftir komu svo í ljós blettir í heila og Sindra var tjáð að hann hefði fengið heilablóðfall.

Hefur ekki náð fullum styrk og minnið í ólagi

Við tók dvöl á spítalanum og í kjölfarið endurhæfing á Grensásdeild, sem lauk um áramótin. Síðan þá hefur Sindri stundað líkamsrækt sjálfur og vinnur nú að því að ná fullum styrk. Hann býst ekki við því að allt verði eins og það var áður en er bjartsýnn á framtíðina.

„Minnið mitt er ekki í lagi og ég er enn sem komið er ekki í neinu ástandi til að vinna. Ég tek einn og einn fund til að heyra hvernig gangi en er ekki nærri því búinn að ná þeim styrk sem til þarf. Ég átti einmitt fund með einum Bandaríkjamanni um daginn sem fékk sjálfur heilablóðfall. Hann talaði alltaf um líf sitt fyrir og eftir heilablóðfallið og ég býst við að þannig verði það líka hjá mér. Ég hef aldrei fengið skýringar á því af hverju ég fékk heilablóðfall en ég er sannfærður um að það hafi verið út af álagi. Ég vann gjörsamlega yfir mig en áttaði mig engan veginn á því. Á þessari ráðstefnu í Orlando sá ég það skýrt að við getum farið inn á Bandaríkjamarkað og náð góðum árangri þar. Viðbrögðin voru þannig að það fer ekki á milli mála. En ég sá líka að ég þarf ekki að gera það sjálfur. Ég þarf bara að sætta mig við að það er ekkert að því að fela öðrum verkefnin þó ég taki líka þátt eða fylgist með. Þegar upp er staðið er fjölskyldan mín það mikilvægasta í mínu lífi og ég ætla að vera viss um að vera til staðar fyrir hana hér eftir.“