Vilhelm Poulsen átti frábæran leik fyrir Fram þegar liðið vann tveggja marka sigur gegn Gróttu í úrvalsdeild karla í handknattleik, Olísdeildinni, í Framhúsi í Safamýri í 14. umferð deildarinnar í gær.
Leiknum lauk með 29:27-sigri Fram en Poulsen var markahæstur Framara með 9 mörk.
Jafnræði var með liðunum í upphafi leiks en Framarar leiddu 16:12 í hálfleik. Framarar leiddu með einu marki, 23:22, þegar tíu mínútur voru til leiksloka. Liðin skiptust á að skora og var staðan 27:26, Fram í vil, þegar þrjár mínútur voru til leiksloka. Framarar voru hins vegar sterkari á lokamínútunum og fögnuðu sigri.
Þorsteinn Gauti Hjálmarsson skoraði átta mörk fyrir Fram en Birgir Steinn Jónsson var markahæstur í liði Gróttu með 7 mörk.
Með sigrinum blönduðu Framarar sér af alvöru í baráttu um sæti í úrslitakeppninni en liðið er með 12 stig, líkt og KA og Afturelding, í níunda sæti deildarinnar.