Strákar Félagar í björgunarsveitinni á Siglufirði æfa hér ísklifur.
Strákar Félagar í björgunarsveitinni á Siglufirði æfa hér ísklifur.
Styrktartónleikar fyrir björgunarsveitina Stráka á Siglufirði fara fram í Siglufjarðarkirkju næstkomandi föstudagskvöld, 11. febrúar, kl. 20. Þann dag er einmitt 112-dagurinn þar sem jafnan er vakin athygli á öryggismálum.

Tónleikarnir verða í beinu streymi á youtuberásinni Straumendur. Hlekkinn má nálgast á facebooksíðu björgunarsveitarinnar.

Markmiðið með tónleikunum er að safna fyrir fullkomnum leitar- og björgunardróna. Ýmsir listamenn koma fram og um undirleik sjá Ástarpungarnir, hljómsveitin sem bar sigur úr býtum í Söngkeppni framhaldsskólanna árið 2020, að því er fram kemur í fréttatilkynningu.