Þorgeir segir að leikjafyrirtækin séu farin að skila vaxandi útflutningstekjum og af því sé hann stoltur.
Þorgeir segir að leikjafyrirtækin séu farin að skila vaxandi útflutningstekjum og af því sé hann stoltur. — Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Íslenskur leikjaiðnaður er í mikilli sókn að sögn formanns íslenskra leikjaframleiðenda.

Þorgeir Frímann Óðinsson, formaður Samtaka leikjaframleiðenda, IGI, og framkvæmdastjóri tölvuleikjafyrirtækisins Directive Games, segir að störfum í íslenskum tölvuleikjaiðnaði hafi fjölgað um 35% á síðasta ári, eða úr 322 starfsmönnum í 435.

Eins og fram kom í samtali ViðskiptaMoggans á dögunum við Stefán Þór Björnsson, fjármálastjóra tölvuleikjafyrirtækisins Solid Clouds, er útlit fyrir að fjöldi starfandi í greininni, annarra en starfa hjá risanum CCP, fari samtals fram úr stórfyrirtækinu á þessu ári.

Flestir bæta við sig

Þorgeir segir stóru fréttirnar þær að mikil fjölgun sé að verða í greininni og flest fyrirtæki að bæta við miklum fjölda starfsmanna. „Hér eru nú sex fyrirtæki sem eru með meira en tuttugu starfsmenn hvert. Okkar fyrirtæki, Directive Games, hefur til dæmis vaxið úr tveimur starfsmönnum á íslensku skrifstofunni í byrjun árs 2020 upp í 21 starfsmann í janúar á þessu ári og við erum að auglýsa eftir fleirum. Það stefnir í að umsvif okkar verði þreföld innan tíðar miðað við það sem var fyrir nokkrum mánuðum.

Þá má nefna spútnik-fyrirtækið Myrkur Games sem hyggst fjölga upp í 35 starfsmenn á þessu ári. Svipuð staða er hjá Mainframe Industries og 1939 Games,“ segir Þorgeir og segir mikla grósku í geiranum.

Fjárfesting 4,4 milljarðar 2021

Hann segir að fjárfesting í íslenskum tölvuleikjageira á síðasta ári, að CCP frátöldu, hafi verið 35 milljónir Bandaríkjadala eða tæplega 4,4 milljarðar íslenskra króna. Þar vegi þungt 22 milljóna dala fjárfesting í Mainframe og 5 m. dala fjárfesting í 1939.

Þorgeir segir að fyrirtækin séu farin að skila vaxandi útflutningstekjum og af því sé hann stoltur.

„Við í íslenskum leikjaiðnaði erum líka í skýjunum með stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar sem sýnir að yfirvöldum er full alvara með að treysta stoðir íslensks hugverkaiðnaðar.“

Þorgeir nefnir í því sambandi betrumbætur á rekstrarumhverfi og tímabundið endurgreiðsluhlutfall vegna rannsókna og þróunarverkefna sem fest hafi verið í sessi. Svigrúm lífeyrissjóða og hvatar fyrir einstaklinga til fjárfestingar í nýsköpun hafi einnig verið aukið. „Hitt stóra atriðið er skilningur á fyrirsjáanlegum mannauðsskorti í greininni. Þetta tæklar sáttmálinn með fyrirætlunum um að auka brautargengi erlendra sérfræðinga til landsins og með innspýtingu í STEM-greina menntun.“

Nýir landvinningar

Um stöðuna hjá Directive Games segir Þorgeir að fyrirtækið sigli nú hraðbyri inn í frekari landvinninga með nýjum tölvuleikjum, en hingað til hefur starfsemin verið í bland þróun eigin verkefna og vinna fyrir þriðja aðila. „Það má segja að við höfum verið svona skuggahöfundar fyrir erlend stórfyrirtæki. Við höfum unnið fyrir mörg af stærstu tæknifyrirtækjum í heimi að ýmiss konar verkefnum. Það þýðir að fyrirtækið hefur alltaf haft nægar tekjur og ekki þurft að reiða sig á hlutafjáraukningar.“

Nýr tölvuleikur Directive Games er nú í alfa-prófunum svokölluðum og fer síðan í beta-prófanir á næstu mánuðum að sögn Þorgeirs. „Það verkefni gengur ágætlega. Í þessu prufuferli verður sannreynt hvort leikurinn eigi erindi á alþjóðamarkað eða hvort við þurfum að gera frekari breytingar. Þá er annar leikur í burðarliðnum, en hann er meðal annars ástæðan fyrir því að okkur vantar meira starfsfólk.“

Útlit er fyrir að sögn Þorgeirs að rafíþróttahlið fyrrnefnda leiksins, sem ber heitið The Machines Arena (TMA), verði keyrð af Faceit, rafíþróttavettvangi með 22 milljónum notenda. „Það veitir okkur góðan aðgang að miklum fjölda spilara.“

Íþyngjandi regluverk í Kína

Directive Games er bæði með skrifstofur í Kína og Los Angeles. Þorgeir segir að vegna íþyngjandi regluverks í Kína varðandi leikjaiðnað og nýrra áherslna ríkisstjórnar Íslands á hugverkaiðnað sé líklegra að fyrirsjáanleg mannauðsaukning fyrirtækisins verði hér á landi frekar en í Kína. Varðandi skrifstofu félagsins í Los Angeles segir Þorgeir að hún hafi verið stofnsett í aðdraganda Covid sem hafi hægt á uppbygginu. Nú séu þó blikur á lofti um að sú uppbygging fari af stað aftur.