Þorkell Sigurlaugsson
Þorkell Sigurlaugsson
Eftir Þorkel Sigurlaugsson: "Ég kem með nýjar áherslur inn í borgarmálin. Hlusta skal á íbúa og atvinnurekendur við borgarþróun og stöðva óánægju og flótta fólks og fyrirtækja."

Ég gef kost á mér í 2. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík 12. mars næstkomandi. Margir hafa eða munu bjóða sig fram í 2.-3. sæti og ég hef metnað í 2. sætið og vona að ég njóti þar stuðnings.

Ég kem með nýja reynslu inn í borgarstjórn eftir áratuga störf við stjórnun stærri og smærri fyrirtækja, sprotafyrirtækja og stjórnun Háskólans í Reykjavík. Tel það kost að hafa ekki verið rótgróinn lengi í borgarmálum, en fylgt sterkt eftir málefnum Sjálfstæðisflokksins. m.a. sem formaður velferðarnefndar í landsmálum og á fyrra kjörtímabili sem formaður menntamálanefndar. Mun njóta þeirrar þekkingar og vonandi áframhaldandi stuðnings í landsmálum flokksins.

Leiðarljós mitt byggist á eftirfarandi tíu stefnumiðum

1. Breyta verður áherslum í skipulagsmálum og stjórnun borgarinnar. Draga verður úr forræðishyggju og taka aukið tillit til sjónarmiða þeirra sem búa og starfa í borginni.

2. Stöðva verður flótta fyrirtækja og fólks frá borginni. Setja þarf nýtt byggingarland strax í uppbyggingu samhliða hófstilltri þéttingu byggðar. Mikilvæg fyrirtæki og íbúar hafa verið að flýja borgina undanfarin ár vegna skorts á hagkvæmum og ódýrum íbúðum og byggingarlandi.

3. Bæta verður aðstöðu og þjónustu við fyrirtæki í öllum greinum atvinnurekstrar . Öflug fyrirtæki eru undirstaða atvinnulífs, tekjuöflunar og velferðar hjá borgarbúum. Slakar almenningssamgöngur, ónóg bílastæði og þröng aðkoma hafa reynst mörgum fyrirtækjum kostnaðarsöm. Sýnu verri eru þó afleiðingar sífellt meiri umferðartafa.

4. Skóla- og íþróttamál verði í hávegum höfð. Skólar verða að þjóna einstaka hverfum og börnum, án myglu, og án þess að löng bið verði eftir íþróttaaðstöðu eða leikskólaplássi.

5. Bæta verður þjónustu við eldri borgara. Sinna verður málefnum eldri borgara af meiri framsýni en hingað til, samhliða fjölgun eldra fólks. Byggja þarf upp betri aðstöðu til forvarna og endurhæfingar sem hentar þessum aldurshópum. Þá er stórt réttlætismál að dregið verði úr álögum á lífeyrisþega.

6. Burt með biðraðir í heilbrigðis- og velferðarmálum. Velferðarmál skipta höfuðborgarbúa miklu máli og á því sviði þarf að hafa samstarf við stjórnvöld. Verðum að losna við biðraðirnar sem einkenna þessa þjónustu á fjölmörgum sviðum.

7. Lækka verður álögur á þá sem búa við kröppust kjör. Þá verður að endurskoða velferðarkerfið heildstætt og losa um fátæktargildrur innan þess t.d. varðandi fasteignagjöld o.fl. Það á ekki síst við um þann vaxandi fjölda eldri borgara sem býr við fátækt, m.a. vegna slakra lífeyrisréttinda og engra launatekna eða fjármagnstekna.

8 . Snúa verður vörn í sókn í húsnæðismálum. Uppbygging húsnæðis hefur verið vanrækt og sérstaklega ódýrt húsnæði fyrir yngra fólk og tekjulága. Úr því verður bætt á kjörtímabilinu. Leigumarkaður þarf einnig að vera virkur og öruggari fyrir leigutaka.

9. Endurskoða verður samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins milli ríkis og sveitarfélaga . Endurskoðun er nauðsynleg á nokkrum mikilvægum þáttum og einnig tryggja að framkvæmdir og tíma- og fjárhagsáætlanir samnings ríkis og sveitarfélaga standist. Flýta verður framkvæmdum fyrir bifreiðar, hjól og gangandi og ekki hægt að bíða í 15-20 ár eftir fullkláraðri svokallaðri „borgarlínu“. Allir samgöngumátar eru nauðsynlegir. Þeir eru í óviðunandi ástandi og verða eftir nokkur ár í enn alvarlegra ástandi, nema til komi einfaldari, ódýrari og fljótlegri lausn á borgarlínu.

10. Taka verður fjármál borgarinnar föstum tökum. Síðast en ekki síst þarf að bæta fjármálarekstur borgarinnar og snúa við þeirri skuldasöfnun sem hefur viðgengist allt of lengi í boði vinstri meirihluta borgarstjórnar.

Stöðva flótta fyrirtækja frá höfuðborginni

Ég vil sérstaklega nefna flótta fyrirtækja úr höfuðborginni. Nokkur nýleg dæmi. Sýslumaður höfuðborgarsvæðisins flutti í Kópavog árið 2016. Höfuðstöðvar Íslandsbanka fluttu í Kópavog í lok sama árs. Tryggingastofnun ríkisins í Kópavog árið 2019 og starfsemin í Orkuhúsinu við Suðurlandsbraut flutti í Kópavog árið 2019. Hafrannsóknastofnun fór 2020 til Hafnarfjarðar, ýmis heilbrigðisfyrirtæki í Urðarhvarf í Kópavogi árin 2019-2021 og Vegagerðin til Garðabæjar 2021. Tækniskólinn fyrirhugar flutning til Hafnarfjarðar svo og Icelandair innan skamms og Víkingbátar, öflugt og stækkandi framleiðslufyrirtæki smábáta, flytur af Kistumel í Reykjavík árið 2023 til Hafnarfjarðar.

Byggðaþróun til framtíðar

Reykjavík hefur dregist aftur úr hvað varðar þróunar byggðar, ekki síst með Sundabraut yfir í Geldinganes, Álfsnes og Kjalarnes þar sem í heildina litið má byggja tugþúsundir íbúða. Einnig eru möguleikar til frekari byggðar í þéttbýli á landi Keldna, Keldnaholti og í Úlfarsársdal. Frestun Sundabrautar er stærsta hneykslið og þar gerði borgin ekkert til að ýta á eftir verkefninu og þvældist frekar fyrir.

Breyttir og betri tímar bíða Reykvíkinga eftir næstu kosningar. Það er kominn tími á nýtt verklag og framtíðarsýn fyrir höfuðborgina; við viljum koma Reykjavík aftur í fremstu röð. Varla er hægt að taka þátt í skemmtilegra verkefni en að vinna að því að gera borgina betri fyrir íbúa, fjölskyldufólk og fyrirtækin. Ég er reiðubúinn að vera hluti af öflugri liðsheild sjálfstæðisfólks og þjóna borgarbúum með þá þekkingu og reynslu sem ég hef fram að færa.

Höfundur er formaður velferðarnefndar Sjálfstæðisflokksins.

Höf.: Þorkel Sigurlaugsson