Sprettur Tiana Ósk Whitworth á fleygiferð í 60 metra hlaupinu á Reykjavíkurleikunum þar sem hún náði sínum besta árangri, 7,45 sekúndum.
Sprettur Tiana Ósk Whitworth á fleygiferð í 60 metra hlaupinu á Reykjavíkurleikunum þar sem hún náði sínum besta árangri, 7,45 sekúndum. — Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Frjálsar Kristján Jónsson kris@mbl.is Spretthlauparinn Tiana Ósk Whitworth segist nú þurfa að setja sér markmið fyrir árið sem fram undan er þar sem hún er aftur orðin heil heilsu en lítið varð úr síðasta keppnistímabili hjá henni.

Frjálsar

Kristján Jónsson

kris@mbl.is

Spretthlauparinn Tiana Ósk Whitworth segist nú þurfa að setja sér markmið fyrir árið sem fram undan er þar sem hún er aftur orðin heil heilsu en lítið varð úr síðasta keppnistímabili hjá henni. Tiana Ósk er öflug í upphafi árs eins og fjallað var um í blaðinu á mánudaginn og hljóp 60 metrana á 7,45 sekúndum á Reykjavíkurleikunum síðasta sunnudag.

„Fyrir nokkrum mánuðum vissi ég ekki hvar ég yrði stödd á þessum tímapunkti vegna þess að ég var að koma til baka eftir meiðsli. Nú þegar ég sé að ég get keppt þá get ég farið að setja mér framtíðarmarkmið. Ég held að við Guðbjörg [Jóna Bjarnadóttir] stefnum bara báðar á að komast á EM næsta sumar. Ég er farin að horfa þangað og það er væntanlega stærsta markmiðið á árinu. Á innanhússtímabilinu viljum við báðar hlaupa 60 metrana hraðar. Við vitum að við getum það og við getum ýtt hvor annarri áfram,“ sagði Tiana Ósk en Evrópumeistaramótið verður á dagskrá í ágúst og fer að þessu sinni fram í München í Þýskalandi.

Tiana hefur hlaupið 60 metra, 100 metra og 200 metra hlaup á undanförnum árum. Hún segist eiga von á því að leggja mesta áherslu á 100 metrana og sú vegalengd henti henni betur en 200 metrarnir.

Horfir til alþjóðlegra móta

„Já ég held að bestu vegalengdirnar séu þessar stuttu. Um leið og ég er komin upp í 200 metrana á ég aðeins erfiðara með að halda hraðanum. Ég er meira í 60 og 100 og mun leggja áherslu á 100 metrana í sumar. En það er alltaf gaman að keppa einnig í 200 metrunum,“ sagði Tiana og spurð út í lágmarkið fyrir EM segir hún það vera krefjandi, en einnig sé hægt að komast inn í mótið með góðri stöðu á styrkleikalistum.

„Lágmarkið er mjög krefjandi en notast er við nýtt kerfi og þar er einnig horft til stöðu á Evrópulistanum. Þótt maður nái ekki lágmarki þá kemst maður inn í mótið ef maður er ofarlega á styrkleikalistanum. Við erum að horfa til þess og þar af leiðandi að vera í hópi þeirra bestu í Evrópu. Frekar fáir ná lágmörkunum því þau eru orðin svo erfið og stefnan er því að vera eins ofarlega á listanum og hægt er,“ sagði Tiana en því fylgir þá væntanlega þátttaka í nokkuð mörgum alþjóðlegum mótum, ekki satt?

„Já einmitt. Maður þarf að safna stigum á sterkum mótum erlendis. Maður hleypur alltaf hraðar í hita og við góðar aðstæður. Ég stefni því á að fara út á sem flest mót,“ sagði Tiana Ósk Whitworth í samtali við Morgunblaðið.