Baksvið
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Arkitektastofan ARK-þing ehf. hefur sent skipulagsfulltrúa Reykjavíkur bréf og vill kanna viðbrögð hans við hugmyndum um uppbyggingu á lóðum í Laugarnesi.
Lóðirnar sem um ræðir eru á mótum Sæbrautar og Klettagarða og standa við Héðinsgötu og Köllunarklettsveg. Þær mynda samfellda heild, sem er eins og stígvél í laginu. Samanlögð stærð þeirra er 56.469 fermetrar. Í dag standa á lóðunum gamlar byggingar, atvinnuhús og vöruskemmur, sem munu víkja ef áformin ná fram að ganga. Verktakafyrirtækið Þingvangur hefur áður kynnt mikla uppbyggingu atvinnuhúsnæðis á lóðunum, þ.e. árið 2017, en ekki varð af þeim framkvæmdum. Þá kynnti Þingvangur árið 2019 hugmyndir um að reisa á lóð við Köllunarklettsveg 550-600 litlar íbúðir til að leysa skammtímavanda á húsnæðismarkaði.
Á síðasta fundi skipulagsfulltrúa var kynnt það sem kallað er óformleg fyrirspurn frá Köllunarkletti ehf., sem er eigandi lóðanna í dag. Þar er óskað eftir viðbrögðum skipulagsfulltrúa við þeim hugmyndum að byggja þarna 200 íbúðir fyrir eldri borgara, þ.e. 55 ára og eldri. Á neðstu hæðunum yrði þjónusta og hugsanlega hjúkrunarheimili. Núverandi eigandi vilji velta upp þeim möguleika að þarna geti einnig risið skólabyggingar.
Í hönnunar- og skipulagsferlinu verði leitast við að tengja lóðirnar við nánasta umhverfi sitt ásamt því að taka mið af umferð og þeirri starfsemi sem sé stunduð í nágrenninu. Er lóðareigandi tilbúinn að gera undirgöng undir Klettagarða á sinn kostnað, en þau muni tengja svæðið við sögustaðinn Laugarnes.
Á lóðunum er einnig gert ráð fyrir hóteli, hótelíbúðum, fjölnotahúsi, verkstæðum, vinnustofum, verslunum og skrifstofum. Lóðirnar verði skipulagðar í nánu samstarfi við Reykjavíkurborg og hagsmunaaðila tengda svæðinu. Íbúðir eldri borgara og hótelstarfsemi er hugsuð á vestari hluta svæðisins. Eldri borgarar á svæðinu, sem og gestir í hótelíbúðum, geti nýtt sér veitingastaði og þjónustu hótelsins. Nálægð við miðborgina verði einnig styrkleiki fyrir hótelstarfsemina.
Er í nálægð við miðborgina
Fjölnotahús myndi rísa austast á lóðunum, næst Kassagerðinni. Þar gæti verið fjölbreytt starfsemi og viðburðir. Nefna megi vinnustofur, verkstæði, líkamsrækt, íþróttastarf, tónleikahald og sýningar, æfingasvæði fyrir leiklist o.fl.„Nálægð lóðanna við miðbæinn, sundin, græn svæði og strandlengjuna býður upp á mikla möguleika til þess að skapa aðlaðandi umhverfi fyrir svæðið,“ segir meðal annars í bréfi Köllunarkletts ehf.
Þá er bent á að með uppbyggingu á lóðunum opnist stórbrotið útsýni yfir sundin og borgina. Mun skipulag miðast við það að gefa sem flestum tækifæri til að njóta þess. Þannig sé ráðgert að byggja sundlaug og veitingastað á þaki fyrirhugaðs hótels með frábæru útsýni.
Köllunarklettur ehf. vonast eftir jákvæðum viðbrögðum við fyrirspurninni og ítrekar í bréfinu að ekki sé um fullmótaðar hugmyndir að ræða. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra skipulagsfulltrúa.