5 Garðbæingurinn Lena Margrét Valdimarsdóttir sækir að HK-ingum í TM-höllinni í Garðabæ í gær en hún skoraði fimm mörk Stjörnunnar í leiknum.
5 Garðbæingurinn Lena Margrét Valdimarsdóttir sækir að HK-ingum í TM-höllinni í Garðabæ í gær en hún skoraði fimm mörk Stjörnunnar í leiknum. — Ljósmynd/Kristinn Steinn
Stjarnan vann sinn annan leik í röð í úrvalsdeild kvenna í handknattleik, Olísdeildinni, þegar liðið tók á móti HK í TM-höllinni í Garðabæ í 13. umferð deildarinnar í gær.

Stjarnan vann sinn annan leik í röð í úrvalsdeild kvenna í handknattleik, Olísdeildinni, þegar liðið tók á móti HK í TM-höllinni í Garðabæ í 13. umferð deildarinnar í gær.

Leiknum lauk með 27:24-sigri Stjörnunnar en Garðbæingar náðu mest þriggja marka forskoti í fyrri hálfleik, 12:9. Stjarnan var einu marki yfir í hálfleik, 15:14, en

staðan var jöfn, 19:19, þegar tuttugu mínútur voru til leiksloka. Þá seig Stjarnan hægt og rólega fram úr og fagnaði nokkuð þægilegum sigri í leikslok.

Lena Margrét Valdimarsdóttir og Helena Rut Örvarsdóttir voru markahæstar í liði Stjörnunnar með fimm mörk hvor.

Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir, Elna Ólöf Guðjónsdóttir, Berglind Þorsteinsdóttir og Jóhanna Margrét Sigurðardóttir skoruðu fjögur mörk hver fyrir HK.