Íris Una og Katla María Þórðardætur, tvíburasystur frá Keflavík, eru komnar til liðs við knattspyrnulið Selfyssinga frá Fylki. Íris og Katla eru tvítugar, leika báðar sem varnarmenn, og léku með Keflavík til 2019.
Íris Una og Katla María Þórðardætur, tvíburasystur frá Keflavík, eru komnar til liðs við knattspyrnulið Selfyssinga frá Fylki. Íris og Katla eru tvítugar, leika báðar sem varnarmenn, og léku með Keflavík til 2019. Þær hafa síðan leikið með Fylki undanfarin tvö ár. Báðar hafa þær spilað 45 úrvalsdeildarleiki. Íris lék 18 af þessum leikjum með Keflavík árið 2019 og Katla 17. Þá hafa þær báðar leikið með yngri landsliðum Íslands á undanförnum árum en Katla á 38 landsleiki að baki og Íris 25.