Jafnan er einhvers að vænta . Breytinga er að vænta, dóms er að vænta, óveðurs er að vænta, úrskurðar er að vænta. Hvers er nú að vænta?
Jafnan er einhvers að vænta . Breytinga er að vænta, dóms er að vænta, óveðurs er að vænta, úrskurðar er að vænta. Hvers er nú að vænta? Ja, meðal annars þess að eftirleiðis minnist lesendur þess að ef þeir endilega þurfa að vænta einhvers geri þeir það í eignarfalli og vænti t.d. ekki „greinargerð“.