Bæjarstjórn Hveragerðisbæjar samþykkti í vikunni ályktun þar sem lýst er furðu á þeirri stöðu sem kom upp í byrjun vikunnar þegar vegurinn um Hellisheiði var lokuður fyrir allri umferð í þrjá sólarhringa.

„Leita þarf langt aftur í tímann, jafnvel áratugi, til að rifja upp slíkt ástand. Bæjarstjórn skorar á Vegagerðina að leita allra leiða til að koma í veg fyrir að slíkt endurtaki sig og að vetrarþjónusta verði eins og best er á kosið,“ segir þar.

Bæjarstjórnin ítrekar mikilvægi þess að þessari fjölförnu samgönguæð sé haldið opinni sé þess nokkur kostur. „Fjölmargir sækja vinnu og/eða skóla á milli Suðurlandsundirlendisins og höfuðborgarsvæðisins og fjölgar sífellt í þeim hópi. Fyrirtæki sinna þjónustu þvert á svæðin og eru greiðar samgöngur þeim mikilvægar. Að síðustu er rétt að minna á að greiðar samgöngur á milli þessara þéttbýlu svæða eru nauðsynlegar vegna öryggis íbúa.“