Golf Guðrún Brá er í 57.-62. sæti í Kenía eftir fyrstu tvo hringina.
Golf Guðrún Brá er í 57.-62. sæti í Kenía eftir fyrstu tvo hringina. — Ljósmynd/Tristan Jones/LET
Atvinnukylfingurinn Guðrún Brá Björgvinsdóttir komst áfram í gegnum niðurskurðinn á Magical Kenya Ladies Open-golfmótinu sem nú stendur yfir í Kenía en mótið er hluti af Evrópumótaröð kvenna í golfi.
Atvinnukylfingurinn Guðrún Brá Björgvinsdóttir komst áfram í gegnum niðurskurðinn á Magical Kenya Ladies Open-golfmótinu sem nú stendur yfir í Kenía en mótið er hluti af Evrópumótaröð kvenna í golfi. Guðrún Brá lék annan hring sinn á mótinu í gær á 78 höggum eða sex höggum yfir pari vallarins. Fyrsta hringinn lék hún á 77 höggum, fimm yfir pari, og hún er því samtals á ellefu höggum yfir pari eftir fyrstu tvo hringina. Guðrún Brá er í 57.-62. sæti og mun leika tvo hringi til viðbótar í Kenía um helgina.