Hannes Tryggvi Hafstein
Hannes Tryggvi Hafstein
Hannes Tryggvi Hafstein sækist eftir 2. til 3. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins á Seltjarnarnesi í komandi prófkjöri vegna kosninganna í vor.

Hannes Tryggvi Hafstein sækist eftir 2. til 3. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins á Seltjarnarnesi í komandi prófkjöri vegna kosninganna í vor. Hannes hefur verið varabæjarfulltrúi á þessu kjörtímabili og tekið fullan þátt í störfum meirihlutans í bæjarstjórn.

Hann hefur verið formaður umhverfisnefndar og heilbrigðiseftirlitsins, varamaður í skipulags- og umferðarnefnd auk menningarnefndar. Hannes var um tíma formaður Sjálfstæðisfélags Seltirninga, sat í stjórn fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna og Baldurs, félags ungra sjálfstæðimanna.