Sýnir Kolbeinn Hugi er einn þeirra listamanna sem opna sýningu í Hvelfingu Norræna hússins í dag.
Sýnir Kolbeinn Hugi er einn þeirra listamanna sem opna sýningu í Hvelfingu Norræna hússins í dag. — Morgunblaðið/Einar Falur
Myndlistarsýningin Even a Worm Will Turn verður opnuð í dag kl. 10 í Hvelfingu Norræna hússins og er það samsýning.

Myndlistarsýningin Even a Worm Will Turn verður opnuð í dag kl. 10 í Hvelfingu Norræna hússins og er það samsýning. Birtingarmyndir eiginlegs og ímyndaðs sambands dýra og manna eru skoðaðar í samhengi við þær menningarlegu hugmyndir, tilfinningar og merkingu sem mannfólkið varpar á félaga okkar í dýraríkinu, segir um sýninguna á vef Norræna hússins og að ímyndunarafli mannskepnunnar virðist engar skorður settar þegar hlutgerving, manngerving og guðgerving mismunandi lífvera sé annars vegar.

„Hin mannmiðaða frásögn af samvist lífs á jörðinni varpar ljósi á mannfólkið og samspil þess við aðrar dýrategundir. Samlíf sem er oftast nær á forsendum mannfólks og ástæðurnar oftar en ekki skilgreinandi út frá þörfum og hugmyndafræði þeirra. Djúpstæðar langanir til að tengjast, skilja eða beisla og drottna yfir öðrum skynjandi verum vill þá taka á sig margslungna mynd. Samhliða þessum mannlæga veruleika búa dýr þó yfir sinni eigin sögu og samhengi. Það er því sama hversu þröngan stakk við sníðum samverum okkar, jafnvel minnstu skepnur upplifa veröldina á sinn hátt og sérhver vera er vörður eigin sagna og leyndarmála handan mannlegs skilnings,“ segir á vefnum.

Listamenn sýningarinnar eru Jaakko Pallasvuo, Viktor Timofeev, Josefin Arnell og Kolbeinn Hugi og sýningarstjórar Veigar Ölnir Gunnarsson, Arnbjörg María Danielsen og Sandra Pérez Møystad.