Stefanía María fæddist 19. ágúst 1947. Hún lést í Færeyjum 14. janúar 2022.

Útförin fór fram 23. janúar 2022 í Vesturkirkjunni í Þórshöfn.

Vinkona okkar, hún Stefanía, er farin foldum frá, sameiningartáknið, saumaklúbbsfélaginn, konan, sem vílaði fátt fyrir sér og hlúði að háum og lágum.

Við stöndum eftir tregafull og tóm, huggum okkur við hlýjar minningar og hugsum um blíða, væna og áreiðanlega vinkonu, sem við aldrei munum gleyma.

Heimurinn, þöglu minningarnar, orðin sem eru innra með okkur, samræðurnar, skemmtilegheitin, hláturinn og hlýjan verða sennilega aldrei söm við sig, og við, sem erum aðflutt, megum ekki við því að missa, síst af öllu óhagganlegan klett, þar sem hægt var að vera í vari, klettinn okkar allra.

Kæru Finn, Jóhann, Henning og Gunnar og allt ykkar fallega fólk. Takk fyrir allt gott og gamalt innanveggja hjá ykkur jafnt sem utan. Við hugsum til ykkar og yljum okkur við vináttu og góðar minningar.

Hvíl í friði, kæra Stefanía. Við söknum þín og þökkum þér af heilu hjarta fyrir samfylgdina, hlýjuna og væntumþykjuna.

Þóra og Martin, Flóvin,

Gullý og Jónas.