Þingvallavatn - Leit - Flugvél
Þingvallavatn - Leit - Flugvél — Morgunblaðið/Eggert
Fresta þurfti aðgerðum við Ölfusvatnsvík í gær þar sem ísilagt Þingvallavatn kom í veg fyrir að hægt væri að hífa upp flak flugvélarinnar TF-ABB sem fórst á fimmtudag í síðustu viku.

Fresta þurfti aðgerðum við Ölfusvatnsvík í gær þar sem ísilagt Þingvallavatn kom í veg fyrir að hægt væri að hífa upp flak flugvélarinnar TF-ABB sem fórst á fimmtudag í síðustu viku.

Tilraunir björgunarmanna við að brjóta ísinn, sem var um fjórir sentimetrar að þykkt, báru ekki árangur og bíða þarf eftir því að hlýni verulega í veðri þangað til hægt verður að reyna aftur. Gæti það tekið nokkrar vikur.