Björn Gíslason
Björn Gíslason
Björn Gíslason, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og formaður Fylkis, sækist eftir þriðja sæti á lista flokksins í prófkjörinu sem haldið verður í næsta mánuði.

Björn Gíslason, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og formaður Fylkis, sækist eftir þriðja sæti á lista flokksins í prófkjörinu sem haldið verður í næsta mánuði.

„Í störfum mínum sem borgarfulltrúi og áður sem varaborgarfulltrúi hef ég öðlast yfirgripsmikla þekkingu á málefnum borgarinnar. Rekstur borgarinnar snertir flest svið mannlegs lífs eins og gefur að skilja,“ segir meðal annars í tilkynningu frá Birni.

„Ég mun beita mér fyrir bættum samgöngum og auknu lóðaframboði. Húsnæðisverð heldur áfram að hækka þrátt fyrir vaxtahækkanir, framboð af íbúðum hefur minnkað hratt og er 70% minna en fyrir ári síðan. Það sjá það allir að þetta gengur ekki upp en við þessu verður að bregðast strax.“