Lilja Lind Pálsdóttir
Lilja Lind Pálsdóttir
Lilja Lind Pálsdóttir gefur kost á sér í 6. sætið í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ. Lilja Lind er fædd og uppalin í Garðabæ.

Lilja Lind Pálsdóttir gefur kost á sér í 6. sætið í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ. Lilja Lind er fædd og uppalin í Garðabæ. Hún er með próf í viðskipta- og hagfræði og starfar sem sérfræðingur hjá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins ásamt því að vera hóptímakennari í World Class.

Í tilkynningu um framboðið segist Lilja vilja leggja áherslu á að Garðabær verði áfram í forystu fyrir fjölskyldur með því að viðhalda leik- og grunnskólum bæjarins í fremstu röð. Einnig þurfi að tengja betur samgöngur við Álftanes og Urriðaholt.