Ferðamenn við Seljalandsfoss.
Ferðamenn við Seljalandsfoss. — Morgunblaðið/Eggert
Erlendir ferðamenn eru farnir að sjást í meira mæli á vinsælum ferðamannastöðum hérlendis.

Erlendir ferðamenn eru farnir að sjást í meira mæli á vinsælum ferðamannastöðum hérlendis. Útlit er fyrir að fleiri ferðamenn fari að flykkjast til landsins þar sem búist er við að heilbrigðisráðherra muni kynna fullar afléttingar á sóttvarnaaðgerðum á næstunni.

Með bjartari tímum hér á landi, en sömuleiðis erlendis, má gera ráð fyrir því að meiri ferðahugur sé í fólki og ferðaþjónustan nái því að taka við sér á ný.