Samdi Stefán Darri Þórsson verður áfram í röðum Fram næstu árin.
Samdi Stefán Darri Þórsson verður áfram í röðum Fram næstu árin. — Morgunblaðið/Árni Sæberg
Stefán Darri Þórsson, fyrirliði karlaliðs Fram, hefur samið að nýju við handknattleiksdeild Fram um að spila með liðinu til ársins 2025, eða næstu þrjú keppnistímabil að þessu loknu.

Stefán Darri Þórsson, fyrirliði karlaliðs Fram, hefur samið að nýju við handknattleiksdeild Fram um að spila með liðinu til ársins 2025, eða næstu þrjú keppnistímabil að þessu loknu.

Stefán Darri er 27 ára gamall og hefur leikið með Fram mestallan ferilinn en var um þriggja ára skeið með Stjörnunni og spænska liðinu Alcobendas áður en hann sneri aftur í Safamýrina sumarið 2019. Hann hefur spilað 13 af 14 leikjum Fram í deildinni í vetur og skorað í þeim 32 mörk.