Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
Hugi Halldórsson byrjaði með nýju hlaðvarpsþættina 70 mínútur með Simma Vill fyrir skömmu. Hugi er vanur hlaðvarpsstjórnandi enda hefur hann verið með nokkur vinsæl hlaðvörp og trónir nýja hlaðvarpið, sem hóf göngu sína í febrúar, nú í efstu sætum íslenska vinsældalistans fyrir hlaðvörp. Hann lýsir hlaðvarpinu sem óvissuferð sem enginn ætti að missa af.
„70 mínútur er gamalt nafn í nýjum búningi. Þetta er ekkert í líkingu við þættina sálugu heldur var ákveðið að nota nafnið enda kannast margir í markhópnum við það. Hugmyndin kom yfir léttu rauðvínsspjalli milli mín og Simma. Ég hafði nýhætt með fyrra hlaðvarp og var að hugsa hvað ég gæti tekið mér fyrir hendur næst. Fjölmiðlabaktería Simma og málgleði hans hafa ekki farið neitt þótt hann sé á kafi í fyrirtækjarekstri, svo við hnoðuðum saman í þátt sem við mundum báðir hafa gaman af og vonandi þeir sem hlusta,“ sagði Hugi Halldórsson
Spurður út í það hvernig honum finnist að hlaðvarpið hangi í efstu sætum íslenska hlaðvarpsvinsældalistans svaraði hann:
„Það er auðvitað skemmtileg viðurkenning að vera á toppnum. Ég hef farið á toppinn með samtals fjögur hlaðvörp og það er kúnst að halda hlaðvarpinu sínu á toppnum eða við hann,“ sagði Hugi.
„Gaman að fólk skuli gefa sér tíma til að hlusta á okkur Simma, ef fólk hættir að hlusta þá er þetta í versta falli hressandi kvöldstund hjá okkur tveim,“ bætti hann kíminn við.
Hér eru nokkur af uppáhaldshlaðvörpum Huga sem hann mælir með.
Chess After Dark „Ótrúlega skemmtileg nálgun á heiðarlegu spjalli á meðan tefld er skák. Ég er mikill „human interest“-aðdáandi og stjórnendur Chess After Dark eru með skemmtilegar aðferðir til að komast inn hjá viðmælanda sínum.“
Beint í bílinn „Hef ekki misst af þætti ennþá. Auðvelt að hlusta á þá félaga, sennilega því ég tengi mjög vel við húmorinn þeirra eftir öll þessi ár. Velti því stundum fyrir mér hvenær þeir missa það en úr því sem komið er þá verður líklega ekkert úr því.“
Í ljósi sögunnar „Vandaðasta hlaðvarp Íslands. Vera er einfaldlega langbest. Öll heimildavinna, frásögn og efnistök fær 10 í einkunn. Líklega ekki margir sem gera sér grein fyrir því það það er mikil list að koma öllu þessu efni saman á einfaldan og skýran hátt á aðeins 40 mín. „Amatör“ myndi klúðra þessu í alltof löngu máli.“
Crime Junkie „Reyndar ég mikill aðdáandi alls sem kemur frá AudioChuck. Óleyst morðmál eða dularfull mannshvörf er mitt kaffi. Ashley Flowers er Vera þeirra Ameríkana, heldur manni við efnið allan þáttinn og missir aldrei sjónar á því sem hlustandinn vill heyra.“
Serial (1. sería) „Fékk mál Adnan Syed á heilann eftir að hafa hlustað á þessa seríu. Gat ekki hætt að hlusta og er líklega búinn að hlusta, lesa og horfa á meira efni um þetta mál en nokkur annar Íslendingur. Mæli mjög mikið með.“