— Morgunblaðið/Eggert
Töluverðu hefur kyngt niður af snjó síðustu daga á höfuðborgarsvæðinu og nutu kátir krakkar þess að leika sér í snjónum fyrir framan Hörpuna í dag.
Töluverðu hefur kyngt niður af snjó síðustu daga á höfuðborgarsvæðinu og nutu kátir krakkar þess að leika sér í snjónum fyrir framan Hörpuna í dag. Snjóþungi í Reykjavík þessa vikuna hefur verið töluverður og mældist snjódýptin á mánudag tuttugu og fimm sentimetrar. Samkvæmt veðurspám Veðurstofu Íslands má búast við norðaustlægri eða breytilegri átt á morgun, þremur til átta metrum á sekúndu og éljagangi.