Eyjar Teigurinn við Kaplagjótu er nánast í rúst eftir óveðrið að undanförnu þar sem hafið bar á land stórgrýti, möl og sand. Golfvöllurinn í bakgrunni.
Eyjar Teigurinn við Kaplagjótu er nánast í rúst eftir óveðrið að undanförnu þar sem hafið bar á land stórgrýti, möl og sand. Golfvöllurinn í bakgrunni. — Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Ómar Garðarsson Vestamannaeyjum Skemmdir á golfvellinum í Vestmannaeyjum eftir ofviðrið og hafrótið þann 8. febrúar eru að koma í ljós eftir að snjó fór að taka upp.

Ómar Garðarsson

Vestamannaeyjum

Skemmdir á golfvellinum í Vestmannaeyjum eftir ofviðrið og hafrótið þann 8. febrúar eru að koma í ljós eftir að snjó fór að taka upp. Allar brautirnar meðfram Hamrinum hafa orðið fyrir skemmdum, á sextándu braut er mikið grjót, teigur á sautjándu braut er nánast horfinn og göngustígar þar í kring.

Stórgrýti og sandur hafa skolast upp á völlinn og merkjanlegar breytingar hafa orðið á Hamrinum og fjörunni fyrir framan. Tjónið er mikið fyrir Golfklúbbinn og verður róið að því öllum árum að koma vellinum í lag fyrir sumarið.

Aðfaranótt þessa dags var ofsaveður af suðvestri við Suður- og Suðvesturland. Mældist 20 metra alda við Garðskaga, ölduhæð við Landeyjahöfn var hátt í tíu metrar og tæplega fimmtán metrar við Surtsey. Fiskur skolaðist á land í Klaufinni, sunnarlega á Heimaey sem ekki hefur gerst í þessum mæli síðan í fárviðri sunnudaginn þriðja febrúar 1991. Það voru því miklir kraftar á ferðinni þennan dag og stóðu upp á golfvöllinn í Vestmannaeyjum sem er einn hinn fallegasti á landinu.

Elsa Valgeirsdóttir, framkvæmdastjóri GV, í meira en 20 ár man ekki eftir öðru eins. „Við höfum áður orðið fyrir tjóni vegna sjógangs en aldrei nokkuð þessu líkt,“ sagði Elsa. „Að teigur nánast fari í heilu lagi hefur aldrei gerst áður. Eftir að snjóinn tók upp eru meiri skemmdir að koma í ljós. Stórgrýti, möl og sandur hafa skolast upp á Hamarinn og t.d. er göngustígurinn hjá Mormónaminnismerkinu horfinn og miklar breytingar á öllu svæðinu.“

Guðgeir Jónsson, vallarstjóri GV, segir erfitt að meta tjónið í peningum en ljóst sé að það er mikið. „Mesta tjónið er á brautum sextán og sautján en fjórtán og fimmtán skemmdust líka. Við eigum eftir að kanna þetta betur en ljóst er að mikil vinna er fram undan. Allt kapp verður lagt á að koma vellinum í lag fyrir sumarið. Við höfum tímann fyrir okkur og það ætti því að takast,“ sagði Guðgeir.