Lokað Pósthúsið á Hellu lokar.
Lokað Pósthúsið á Hellu lokar. — Morgunblaðið/Eggert
Þegar pósthúsum Íslandspósts verður lokað á Hellu og Hvolsvelli verður ekkert pósthús frá Selfossi að Höfn í Hornafirði.

Þegar pósthúsum Íslandspósts verður lokað á Hellu og Hvolsvelli verður ekkert pósthús frá Selfossi að Höfn í Hornafirði. Guðrún Hafsteinsdóttir, þingmaður Suðurkjördæmis, segir þessa þjónustuskerðingu slæma þróun og bendir á að stöðugildin þrjú sem tapast við lokunina jafngildi um 200 á höfuðborgarsvæðinu.

Hörður Jónsson, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Íslandspósts, segir að til standi að fækka einnig afgreiðslum en fjölga pósthólfum á höfuðborgarsvæðinu.

Á Hvolsvelli verða lögð niður tvö störf sem eru 1,75 stöðugildi og eitt fullt starf á Hellu.

Starfsfólkinu býðst vinna hjá Póstinum á Selfossi. Þá verður póstur afgreiddur úr bílum. 4