Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Ef áætlanir Landsvirkjunar ganga eftir og nauðsynleg leyfi fást í tíma verður unnt að hefja undirbúningsframkvæmdir við Hvammsvirkjun í neðrihluta Þjórsár undir lok þessa árs og auglýsa útboð á byggingarframkvæmdum. Þetta er þó háð afgreiðslu á virkjanaleyfi og framkvæmdaleyfi. Þá hefur stjórn Landsvirkjunar ekki ákveðið að ráðast í framkvæmdina.
„Aðalatriðið er að við séum með skilvirt kerfi þar sem leyfisveitingar taki ekki of langan tíma en á sama tíma sé ekki veittur afsláttur af gæðum leyfisveitinganna,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, þegar hann er spurður hvort leyfisveitingakerfi virkjana sé nógu skilvirkt. Landsvirkjun sótti um virkjanaleyfi fyrir Hvammsvirkjun fyrir átta mánuðum. Orkustofnun hefur nú svarað og óskað eftir nánari upplýsingum.
Byrjað á frárennslisskurði
Eftir áratuga undirbúning þar sem forsendur hafa iðulega breyst hillir nú undir að framkvæmdir hefjist við Hvammsvirkjun sem er efst fyrirhugaðra virkjana í neðrihluta Þjórsá og verður áttunda aflstöð Landsvirkjunar á Þjórsár-Tungnaársvæðinu. Undirbúningsframkvæmdir felast meðal annars í vegagerð, greftri á frárennslisskurði, aðstöðusköpun og færslu á mastri Búrfellslínu sem liggur yfir vinnusvæðið.Valur Knútsson, forstöðumaður á framkvæmdasviði Landsvirkjunar, segir að vegna erfiðs aðgangs að efnisnámum hafi verið ákveðið að byrja á því að grafa frárennslisskurðinn og nota efnið við uppbyggingu vega.
Hvammsvirkjun
» Uppsett afl Hvammsvirkjunar verður allt að 95 megavött og orkuvinnslugeta um 720 gígavattstundir. Nýtir virkjunin vatn sem þegar hefur runnið í gegnum aðrar aflstöðvar á Þjórsársvæðinu.
» Uppsett afl núverandi aflstöðva á svæðinu er 1.040 megavött og orkuvinnslugeta í góðu vatnsári 6.800 gígavattstundir.