Gerður Huld Arinbjarnardóttir hefur selt landanum kynlífstæki fyrir marga milljarða. Hún rekur Blush, vinsælustu kynlífstækjaverslun landins, sem vex með hverju ári. Gerður var valin markaðsmanneskja ársins 2021 og hyggst halda ótrauð áfram enda uppfull af nýjum hugmyndum. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Þeir voru ansi háværir litlu sætu hundarnir hennar Gerðar Huldar Arinbjarnardóttur þegar blaðamann bar að garði. Tveir hvítir hrokkinhærðir smáhundar, annar með gosbrunn í hárinu, vildu taka gestinn út áður en þeir sættu sig við þessa innrás. Eftir að hafa gengið úr skugga um að þarna væri ekki óvinur á ferð datt allt í dúnalogn. Út um gluggann blasti við snjóhvítt og friðsælt landslag svo langt sem augað eygði. Vel sást út á Vífilsstaðavatn og mun lengra; alla leið út á Reykjanesið. Keilir blasti við og það stirndi á hvítan fjallstoppinn.
Áður en við byrjum spjall um lífið og viðskiptin dáumst við saman að útsýninu á þessum fagra vetrardegi. Gerður hefur komið sér vel fyrir í grænum sófa. Hún er í þægilegum fötum, ómáluð með hárið í hnút. Við höfum nóg að tala um, en Gerður, sem kennd er við fyrirtækið sitt Blush, var valin markaðsmanneskja ársins 2021, yngst kvenna til að hljóta þann titil. Hún segist vera hissa, ánægð og þakklát.
Að hafa fyrir hlutunum
Í húsinu hennar Gerðar er afar smekklegt; allt á sínum stað og greinilegt að nostrað hefur verið við hvert horn. Gerður hefur búið nánast á sama bletti alla sína ævi.„Ég er alin upp í Kópavogi, reyndar í þessu húsi! Mamma og pabbi byggðu húsið, en höfðu áður byggt annað hús hér í götunni. Ég keypti svo hluta þess fyrir fjórum árum og pabbi býr á neðri hæðinni og mamma hér rétt hjá,“ segir Gerður og segir það afar þægilegt að hafa foreldrana svona nálægt.
„Ég er langyngst af þremur systrum en mamma og pabbi voru bara sextán og sautján ára þegar þau eignuðust systur mínar,“ segir Gerður en hún er tíu og ellefu árum yngri en þær og tekur fram hlæjandi að hún sé sú eina sem hafi verið plönuð.
Gerður segist alltaf hafa verið dugleg, allt frá æsku.
„Ég byrjaði fjórtán ára að vinna í matvöruversluninni Spar og man að ég bað pabba að tala við eigandann, sem hann þekkti eitthvað, til að biðja um vinnu fyrir mig. Pabbi sagði mér bara að sækja sjálf um sem ég gerði. Ég fékk vinnuna og það var vegna þess að ég sótti sjálf um en sendi ekki pabba. Þetta kenndi mér strax að ég gæti staðið á eigin fótum. Ég hef alltaf þurft að hafa fyrir hlutunum, þó ég hafi góðan stuðning frá foreldrum mínum,“ segir Gerður, en faðir hennar, Arinbjörn Snorrason, er lögreglumaður og pípari og móðir hennar, Friðný Möller, er sjúkraliði aldraðra.
„Ég þekki fáa sem vinna jafn mikið og foreldrar mínir, sérstaklega pabbi. Mér fannst sjálfri svo skrítið þegar ég fór „bara“ að vinna við Blush, sitjandi heima allan daginn við tölvu,“ segir Gerður sem hefur aldrei hlíft sér við vinnu.
Mér leiðist aldrei
Gerði gekk alltaf illa í skóla enda segir hún alveg ljóst að hún sé mjög lesblind.„Ég fékk fimm á öllum samræmdu prófunum, reyndar 4,5 í ensku. Ég er rosalega lesblind og var komin á fermingaraldur þegar ég gat skrifað Arinbjarnardóttir. Enn í dag á ég erfitt með að skrifa einfalda hluti en er ótrúlega heppin að maðurinn minn er sleipur í íslensku og hjálpar mér mikið. Ég rugla öllum stöfum saman og les oft eitthvað allt annað en það sem stendur. Um daginn las ég frétt um að Icelandair væri að fara að fljúga til Norður-Kóreu og var alveg steinhissa. Ég kallaði í manninn minn og sagði honum þetta alveg í sjokki. Ég var margbúin að lesa þetta til að vera viss. En þarna stóð víst að þeir væru að fljúga til Norður-Karólínu,“ segir hún og hlær.
„Þetta háir mér mjög mikið. Ég fór aldrei í neina greiningu sem barn en var alltaf í sérkennslu og var í C-bekk, sem var bekkur sem fór hægferð,“ segir Gerður og segist hafa byrjað í menntaskóla en hætt, enda gekk henni ekki vel. Þaðan lá leiðin í hárgreiðslunám.
„Ég fór að vinna við það en hafði ekki alveg nógu mikinn áhuga. Nítján ára fór ég í Hraðbraut og gekk furðuvel en varð svo ólétt og hætti,“ segir Gerður, en sonur hennar, Hektor Elí, er tólf ára.
„Ég og barnsfaðir minn skildum frekar fljótt og var ég því einstæð móðir 21 árs með tveggja ára barn. Það var mjög erfitt, ekki síst fjárhagslega,“ segir Gerður en núverandi maður hennar er Jakob Fannar Hansen, flugmaður að mennt, en vinnur nú við hlið Gerðar í fyrirtækinu.
„Hann var að vinna hjá Wow en missti svo vinnuna og við ákváðum að prófa að hann kæmi að vinna hjá Blush þar til flugið færi aftur í gang. En svo langar engan að hann fari og hann ekki heldur,“ segir Gerður og brosir.
Hún segir ekki erfitt að vinna með maka sínum.
„Alls ekki. Þetta er besta ákvörðun sem við höfum tekið. Hann er einstakt eintak, rólegur og þægilegur. Svo erum við alveg sitt á hvorum enda fyrirtækisins þannig að oft hittumst við ekkert allan daginn. Hann er mikið að vinna á lager og á ferðinni á meðan ég er alltaf heima að vinna,“ segir Gerður sem segist njóta þess að vinna heima.
„Það kannski kemur mörgum á óvart en ég er mikill „introvert“. Ég elska að eiga rólegt heimili,“ segir Gerður.
„Ég nærist á því að vera ein og mér leiðist aldrei. Ég er mjög skapandi í hugsun og elska að horfa hér út um gluggann og fá nýjar hugmyndir.“
Við stundum jú öll kynlíf
Fyrirtækið Blush var stofnað 2011 og gengur nú afar vel en Gerður lætur ekki staðar numið við innflutning hjálpartækja ástarlífsins því hún er sjálf að hanna sína eigin línu undir nafninu Reset.„Ég elska að hanna nýjar vörur og hafa fjórar þeirra komið út nýlega og von er á þremur næsta sumar. Línan er hugsuð fyrir Evrópumarkað en við erum byrjuð að selja hérlendis og hefur það gengið alveg fáránlega vel. Pælingin með Reset er sú að þú ert að endurstilla orkuna þína þegar þú stundar kynlíf eða sjálfsfróun,“ segir Gerður og nefnir að nýju Reset-vörurnar séu í dag þær vinsælustu í versluninni.
Hvernig byrjaði þetta allt saman?
„Ég fór í verslun hér á höfuðborgarsvæðinu til að kaupa svona og á móti mér tekur fullorðinn karlmaður og ég man hvað mér fannst það óþægilegt. Þarna voru klámmyndir út um allt og vörur þarna með myndum af klámstjörnum. Ég tengdi ekkert við þetta og fannst ég smá skítug að hafa farið þarna inn,“ segir hún og segist hafa farið þaðan út með það í huga að panta þessa vöru frekar á netinu.
„Nema hvað, þá sendu þeir ekki til Íslands. Ég fór neðst á síðuna og fann þar sem stóð „shipping“, klikkaði á það og valdi Ísland. Þá stóð að hér væri enginn með umboðið og svo var spurt hvort maður vildi gerast umboðsmaður vörunnar. Ég og vinkona mín horfðum hvor á aðra og bara, já já! Við byrjuðum því tvær, ég og Rakel Ósk Orradóttir, með Blush. Ég fékk tvö hundruð þúsund krónur lánaðar hjá pabba til að kaupa kynlífstæki og boltinn fór að rúlla.“
Hvað sagði pabbi þinn þegar þú baðst um lán fyrir kynlífstækjum?
„Mamma var svo fyrsti viðskiptavinur minn. Þannig að mamma og pabbi sýndu mér strax mikinn stuðning.“
Skortur á sjálfstrausti
Gerður og Rakel byrjuðu með heimakynningar þar sem þær kynntu vörur sínar.„Þetta var mikið hark. Við vorum að auglýsa á Facebook og „múta“ vinkonum okkar til að halda kynningar. Þetta var eins og dýrt áhugamál; við gátum ekkert borgað okkur laun. Rakel fór svo út úr fyrirtækinu eftir eitt, eitt og hálft ár,“ segir Gerður og segist hafa verið í öðrum störfum til að afla sér tekna.
„Ég var lengi hjá Hópkaup og svo hjá K100 í sölumálum og var þar í fullu starfi. Svo var ég að selja Saladmaster-potta á virkum kvöldum og með heimakynningar Blush um helgar. Svo vann ég líka við það að elda allar máltíðir fyrir einn mann, hádegis- og kvöldmat. Og ég var með lítið barn. Ég vildi svo mikið láta þetta ganga,“ segir Gerður og átti að vonum ekki mikinn frítíma.
„Blush varð ekki til óvart eða fyrir heppni. Ég þurfti að hafa mikið fyrir þessu og þetta hefur verið blóð, sviti og tár. Og mikil fórn. Ég var allar helgar að vinna í staðinn fyrir að geta verið með barninu mínu,“ segir Gerður og segir að fyrstu tvö, þrjú árin hafi gróðinn verið enginn.
Hafðir þú strax einhverja sýn?
„Skortur á sjálfstrausti til að vera nógu hugrökk var vandamálið og síðustu árin hef ég unnið mikið í sjálfri mér til að öðlast sjálfstraust, hugrekki og þolinmæði.“
Ekki eitthvað dónalegt
Hver var þín sýn og hvernig átti búðin þín að vera öðruvísi?„Markmið mitt var að færa kynlífstæki frá klámi yfir í kynheilbrigði. Ég vildi opna umræðuna um að þetta sé ekki eitthvað dónalegt. Það eiga allir rétt á því að upplifa fullnægjandi kynlíf. Því miður er það þannig að margar konur, eða einstaklingar með píku, eiga ofboðslega erfitt með að fá fullnægingu, í samanburði við karlmenn eða einstaklinga með typpi. Við erum ekki að spila sama leikinn. Meðalkona er fimmtán til tuttugu mínútur að fá fullnægingu en karlmenn tvær til þrjár mínútur. Þetta er eins og að annar sé að keppa í handbolta en hinn í fótbolta,“ segir Gerður og segist oft fá í búðina konur sem segjast aldrei hafa fengið fullnægingu.
„Það gerist nánast daglega. Starfsfólkið í versluninni fær oft að vita mikið um viðskiptavinina og við bjóðum upp á faglega þjónustu og ráðgjöf,“ segir Gerður og segir þrettán manns vinna í fyrirtækinu í fullu starfi.
„Búðin er aldrei tóm nema þegar það er vont veður,“ segir hún og brosir.
Garðsala með kynlífstækjum
Ekki hefur alltaf blásið byrlega hjá Blush. Þegar fyrirtækið var þriggja ára opnaði Gerður fyrstu búð sína á Dalveginum en lokaði þremur mánuðum síðar.„Ég sat þarna allan daginn og beið eftir viðskiptavinum en það kom enginn. Ég skildi ekkert í þessu. Ég átti engan pening og var búin að skuldsetja mig og sá að ég gat ekkert gert. Ég var bara fangi í þessari verslun sex tíma á dag. Svo liðu tvö, þrjú ár og þá opnaði ég 36 fermetra búð í Hamraborg en við sprengdum hana strax. Þá var ég að opna búð því ég gat ekki verið með þetta heima hjá mér lengur, ég var með fólk hér á hurðinni daglega,“ segir Gerður sem þá seldi vörur á netinu og í heimakynningum en segir svo marga hafa viljað koma sjálfir að sækja eða skoða.
„Stofan mín var teppalögð með pappakössum með kynlífstækjum,“ segir hún og hlær.
„Eitt skipti keypti ég þrotabú af sænsku fyrirtæki og fékk sent til Íslands og ákvað að vera með garðsölu. Ég auglýsti á Facebook: „Garðsala með kynlífstækjum“ og það varð allt kreisí! Ég setti fullt af borðum út í garð og raðaði á þau kynlífstækjum. Það var bílaröð frá Salalauginni og alla leiðina hingað. Það mættu fleiri hundruð manns og lögreglan þurfti að koma að stjórna umferðinni!“ segir hún og hlær.
Langstærst á markaðinum
Blush fór heldur betur að blómstra og þremur árum eftir að Gerður opnaði fyrstu verslunina í Hamraborg þurfti hún að stækka við sig og opnaði stærri verslun, einnig í Hamraborginni. Í fyrra opnaði hún síðan 860 fermetra verslun á Dalveginum.„Að koma inn í þá verslun er eins og að ganga inn í ævintýraheim. Það er upplifun. Þarna fékk mín sköpunargleði að ráða,“ segir Gerður og segist hafa flutt inn risastórt kirsuberjatré frá Kína.
„Ég keypti það á Aliexpress og er það fimm metrar á hæð og sex á breidd. Það hafði verið draumur lengi að fá svona tré og loks gat ég það því það er átta metra lofthæð í nýju búðinni,“ segir Gerður og segist auðveldlega hafa getað fyllt þessa 860 fermetra, en fyrri búðin var 160 fermetrar.
„Það var allt að springa og ég var komin með lager og geymslur út um allt,“ segir Gerður en velta fyrirtækisins í fyrra var yfir sex hundruð milljónir. Salan tvöfaldaðist árið 2020, á fyrra ári kórónuveirunnar, og jókst svo um 40% í fyrra.
„Fólk var meira heima hjá sér og leiddist, eða fast í einangrun. Ég hélt að ég væri búin að metta markaðinn en svo er ekki. Viðhorfið er að breytast og fólk á ekki lengur bara eitt egg heldur heilan dótakassa.“
Þannig að nú er loks öll vinnan farin að skila sér?
„Þegar ég byrjaði man ég að ömmu og afa leið eins og ég væri gjörsamlega að gera eitthvað ólöglegt. Það fóru að birtast myndir af mér í blöðum og amma spurði mig hvað ég ætlaði svo að gera þegar ég þyrfti svo að sækja um vinnu. Ég sagði ömmu að ég ætlaði aldrei aftur að sækja um vinnu. Henni leið eins og ég væri búin að skemma mannorðið og þannig var viðhorfið hjá mörgum.“
Hef trú á hugmynd
„Þetta er vinnan mín en samt svo miklu meira en það. Þetta er ástríðan mín. Ég geri ekkert mikið annað en það sem tengist Blush,“ segir Gerður og segist eiga sér nokkur önnur áhugamál.„Mér finnst ofboðslega gaman að elda og ég tek stundum pásu frá vinnunni og elda eitthvað gott fyrir okkur Jakob og svo vinnum við oftast á kvöldin líka. Ég er oft langt fram yfir miðnætti að tala við Kína vegna tímamismunarins. Ég byrja oft ekki fyrr en tíu, ellefu á morgnana, enda ekki mikil A-manneskja,“ segir Gerður og segist einnig fara mikið til útlanda á sýningar og fundi og auk þess tekur hún oft á móti birgjum sem vilja ólmir koma til Íslands.
„Þetta er mjög fjölbreytt starf. Ég hef farið tvisvar til Kína og átti að fara nýlega en það var hætt við vegna Covid. Ég elska að vinna með Kínverjum, þeir eru alveg pottþéttir,“ segir Gerður sem nú vinnur einnig að því að koma vöru sinni Reset á Evrópumarkað.
„Ég er enn að hanna fleiri vörur og við förum ekki með neitt á markað erlendis fyrr en það verður komið heilsteypt vörumerki. Svo tekur þetta allt tíma; það þarf að búa til konseptið alveg fyrst.“
Þannig að þú ert að fara í útrás?
Nú varstu valin markaðsmanneskja ársins, það hlýtur að hafa gefið þér sjálfstraust?
„En maður þarf að læra að hunsa svoleiðis hugsanir,“ segir hún og segir það vera mikinn heiður að fá þessa viðurkenningu. Sjálf hafi hún lengi litið upp til þeirra sem þennan titil hafa borið á undan henni.
„Ég horfði á þetta fólk vinna þessi verðlaun og fannst þau algjörar rokkstjörnur. Nú er ég búin að fá þesa viðurkenningu og fer að efast um sjálfa mig. Egóið mitt stækkar ekki heldur finnst mér ég þurfa að standa mig. Ég þarf að halda rétt á spöðunum og halda áfram en ég er mjög skynsöm. Ég er bara 32 ára og er með fullt af hugmyndum. Ég er rétt að byrja!“