Átta tilboð bárust í framkvæmdir við gatnagerð í Prýðahverfi sunnan Álftanesvegar í Garðabæ og voru þau öll undir kostnaðaráætlun. Lægsta tilboð var frá fyrirtækinu Háfelli ehf. og nam tæplega 230 milljónum króna, en nokkur tilboð voru lítið eitt hærri.

Átta tilboð bárust í framkvæmdir við gatnagerð í Prýðahverfi sunnan Álftanesvegar í Garðabæ og voru þau öll undir kostnaðaráætlun.

Lægsta tilboð var frá fyrirtækinu Háfelli ehf. og nam tæplega 230 milljónum króna, en nokkur tilboð voru lítið eitt hærri. Kostnaðaráætlun bæjarins var tæplega 281 milljón.

Bæjarráð Garðabæjar samþykkti í vikunni að taka tilboði Háfells, með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins.