Aðalsteinn Aðalsteinsson á 90 ára afmæli í dag. Hann er fæddur að Vaðbrekku í Hrafnkelsdal 26. febrúar árið 1932 og var bóndi þar ásamt eiginkonu sinni, Sigríði Sigurðardóttur, í alls 50 ár. Þau eiga sex börn.

Auk búskapar á Vaðbrekku sinnti Aðalsteinn allskonar félagsmálum fyrir bændur í heimabyggð sem og á landsvísu. Meðfram búskapnum stundaði hann hreindýraveiðar í 70 ár. Aðalsteinn er nú búsettur á hjúkrunarheimilinu Dyngju á Egilsstöðum.