Atvinnukylfingurinn Haraldur Franklín Magnús úr GR spilaði frábært golf á öðrum hring sínum á Johnson Workwear-mótinu í Durban í Suður-Afríku í gær. Haraldur lék hringinn á 66 höggum eða fjórum höggum undir pari vallarins.
Atvinnukylfingurinn Haraldur Franklín Magnús úr GR spilaði frábært golf á öðrum hring sínum á Johnson Workwear-mótinu í Durban í Suður-Afríku í gær.
Haraldur lék hringinn á 66 höggum eða fjórum höggum undir pari vallarins. Fékk hann fimm fugla og einn skolla á hringnum.
Eftir fyrstu tvo hringina er Haraldur á samtals átta höggum undir pari í 8.-11. sæti mótsins. Hann komst örugglega í gegnum niðurskurðinn og leikur því tvo hringi til viðbótar í dag og á morgun.