[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Úr bæjarlífinu Björn Björnsson Sauðárkróki Þótt veðurguðir hafi leikið allstóran hluta landsmanna heldur grátt að undanförnu, með mikilli fannkomu og jafnvel stórviðrum, hefur Skagafjörðurinn sloppið mun betur en aðrir landshlutar.

Úr bæjarlífinu

Björn Björnsson

Sauðárkróki

Þótt veðurguðir hafi leikið allstóran hluta landsmanna heldur grátt að undanförnu, með mikilli fannkomu og jafnvel stórviðrum, hefur Skagafjörðurinn sloppið mun betur en aðrir landshlutar. Vissulega hefur verið vindasamt og kalt en ekkert sem ástæða er til að fjargviðrast yfir enda bæði þorri og góa oft á fyrri tíð bæði illviðrasöm með kulda og fannfergi.

Nú nýverið urðu þau ánægjulegu tíðindi í niðurstöðum kosninga, að samþykkt var að allt það landssvæði sem tilheyrir Skagafjarðarsýslu mundi eftirleiðis vera eitt sveitarfélag, og mun varla vera algengt að heil sýsla sé eitt sveitarfélag.

Að sögn sviðsstjóra stjórnsýslu og fjármálasviðs sveitarfélagsins, Margeirs Friðrikssonar, er nú unnið að breytingum á samþykktum beggja aðila svo unnt verði að ganga til sveitarstjórnakosninga í vor og í framhaldi af því að samræma samþykktir nýs sveitarfélags. Margeir segir fjárhagsstöðu sveitarfélagsins vel viðunandi miðað við aðstæður í þjóðfélaginu. Vissulega væru margir þættir í rekstrinum þungir, og ekki fyrirsjáanlegt að muni verða á breyting á næstunni og má þar nefna fræðslu- og skólamál svo og málefni fatlaðra, en Skagafjörður fer með þann málaflokk á öllu Norðvesturlandi, en þar var halli síðasta árs upp á 273 milljónir og hlutur Skagafjarðar rúm 151 milljón.

Fyrir sl. áramót keypti sveitarfélagið sorphirðingarstöðina Flokku af Ómari Kjartanssyni stofnanda fyrirtækisins og í vor mun farið í útboð á sorphirðu alls svæðisins, en nú er unnið að skipulagningu, vegna útboðsins, og hvernig framkvæmd þessa verður háttað.

Sömuleiðis keypti sveitarfélagið húsnæði fyrrum Búnaðar- eða Arionbanka og mun leigja ýmsum fyrirtækjum og stofnunum aðstöðu í því húsnæði. Sagði Margeir að báðar hæðir hússins væru nánast fullnýttar, en um væri að ræða bæði ný fyrirtæki svo og önnur sem vildu stækka við sig.

Á vegum Skagafjarðarveitna er unnið að hönnun nýrrar hitaveitulagnar frá Langhúsum í Fljótum, en þar er gert ráð fyrir samtengingu við Hrollleifsdalsvirkjun, en þar hefur verið skipt um dælur í borholu, bæði til að auka öryggi og vatnsmagn. Er lagnaleiðin úr Fljótum talin kosta um 200 milljónir, en fengist hafa frá ríkinu til þessa verks 72 milljónir hvort árið, 2022 og ´23.

Um áramót var tekinn í notkun nýr leikskóli á Hofsósi sem byggður er í tengslum við grunnskólann þar og að öllu frágenginn nema hluti lóðar, sem bíða mun vors. Þá er unnið að stækkun leikskólans Ársala sem nemur tveim deildum, en um er að ræða einingahús sem tengt er fyrri byggingum. Einnig er í hönnunarferli nýr leikskóli í Varmahlíð sem verður innan veggja endurhannaðrar byggingar grunnskólans.

Það kom fram hjá Margeiri að nú eru yfirstandandi miklar byggingarframkvæmdir, 68 íbúðir eru í smíðum á mismunandi byggingarstigi, 47 á Sauðárkróki, 4 í Varmahlíð og 17 utan þéttbýlis. Þá eru að hefjast framkvæmdir við síðari áfanga viðbyggingar sundlaugarinnar, og er það fyrirtækið Uppsteypa ehf. sem annast það verk.

Sigurður Hauksson er framkvæmdastjóri skíðasvæðis ungmennafélagsins í Tindastóli, ungur maður og athafnasamur og hikar ekki við að fullyrða að Tindastólssvæðið sé eitt besta skíðasvæði landsins um þessar mundir.

„Við náðum að opna fyrstir í vetur, í nóvember, og þá þegar var mikil og góð aðsókn, bæði æfinga- og skólahópar og gestir fyrir hátíðir voru um 3.000, í fyrra var ekki opnað fyrr en í janúar enda voru komur í fjallið þá ekki nema 12.700.“

Sigurður segir að janúar og febrúar í ár hafi verið úrtakasamir vegna endalausra óveðursviðvarana, en þó séu gestir alls orðnir um 7.000, en nú sé farið að birta og ekki svo langt í páska og þess vegna bjart fram undan.

Um þessar mundir er verið að taka í notkun nýjan skíðaskála sem hýst getur 60 gesti, sem Sigurður segir vera fyrsta skrefið í að gera Tindastólinn að úrvalsskíðamiðstöð, en í skálanum er rúmgóður matsalur, fundarherbergi og fullbúið sjúkraherbergi.

Í framhaldinu vill Sigurður sjá heita potta og gufuböð til þess að aðstaðan verði verulega góð.

Fyrir um tveimur árum var efri lyftan tekin í notkun og flytur hún skíðamenn í 940 m hæð en þaðan er lengsta troðna brekka landsins, um þrír kílómetrar, og segir Sigurður að allir ættu að finna svæði við getu og hæfi, hér sé eina löglega risastórsvigsbraut landsins, 12 km löng troðin göngubraut með mikið og fallegt landslag, þá njóti Lambárbotnar vaxandi vinsælda meðal fjalla- og utanbrautarskíðamanna.

Um aðra helgi segir Sigurður stefnt að stórum viðburði, en þá verða kvöldskíði, þar sem tónlist og skemmtiatriði verða í öllum brekkum, og þá kemur líka Annika Malacinski beint úr heimsbikarkeppni í norrænni tvíkeppni og verður með námskeið fyrir skíðagöngufólk.

Svo sem sjá má er mannlíf frekar gott í Skagafirði, þrátt fyrir að veiran herji enn og mörgum virðist lítt friðvænlegt um heimsbyggðina lengist enn þá dagur og sól hækkar á lofti, og einhvern tíma hljóta allir slæmir hlutir að taka enda.