Þessi myndarlegi hópur barna, ásamt nokkrum vinum til viðbótar, safnaði samtals 45.079 krónum til styrktar mannúðarstarfi Rauða krossins. Þau söfnuðu með því að ganga í hús, selja perlað handverk sem þau bjuggu til og með því að halda tombólur.
Þessi myndarlegi hópur barna, ásamt nokkrum vinum til viðbótar, safnaði samtals 45.079 krónum til styrktar mannúðarstarfi Rauða krossins. Þau söfnuðu með því að ganga í hús, selja perlað handverk sem þau bjuggu til og með því að halda tombólur. Á myndinni eru Dagmar Steinþórsdóttir , Birnir Mar Steinþórsson , Kári Valur Steinþórsson , Anna Björg Steinþórsdóttir , Jón Valur Helgason , Þórhildur Eva Helgadóttir og Sóldís Lilja Magnúsdóttir . Rauði krossinn þakkar þeim og hinum krökkunum sem tóku þátt í söfnuninni kærlega fyrir rausnarlegt framlag þeirra.