[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Fótbolti Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Hannes Þór Halldórsson, leikjahæsti markvörður í sögu íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu, hefur lagt hanskana á hilluna, 37 ára að aldri.

Fótbolti

Bjarni Helgason

bjarnih@mbl.is

Hannes Þór Halldórsson, leikjahæsti markvörður í sögu íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu, hefur lagt hanskana á hilluna, 37 ára að aldri.

Hannes lék 77 A-landsleiki á árunum 2011 til ársins 2021 en hann var í lykilhlutverki með íslenska liðinu á Evrópumótinu 2016 í Frakklandi og heimsmeistaramótinu í Rússlandi árið 2018.

Markvörðurinn er uppalinn hjá Leikni í Reykjavík en hann lék einnig með Aftureldingu, Stjörnunni, Fram, KR og Val hér á landi.

Þá á hann að baki farsælan atvinnumannsferil með Brann, Sandnes Ulf og Bodö/Glimt í Noregi, NEC í Hollandi, Randers í Danmörku og Qarabag í Aserbaídsjan.

Hannes lék síðast með Val hér á landi en rifti samningi sínum við félagið í nóvember á síðasta ári og hefur verið án félags síðan.

Hann varð þrívegis Íslandsmeistari á ferlinum, tvívegis með KR og einu sinni með Val, og tvívegis bikarmeistari með KR. Alls á hann að baki 205 leiki í efstu deild.

„Þegar allt kemur til alls þá er ég ánægður með þessa ákvörðun mína,“ sagði Hannes í samtali við Morgunblaðið.

„Viðskilnaðurinn við Val var mjög óvæntur og ég átti alls ekki von á því að leiðir myndi skilja á þessum tímapunkti. Það tók mig smá tíma að meðtaka hann og svo að stokka spilin upp á nýtt. Nokkrum vikum síðar fann ég það hjá sjálfum mér að því meira sem ég fjarlægðist fótboltann því minni varð löngunin til að keyra þetta áfram. Ég hef vitað það í einhvern tíma að þetta væri eflaust það sem koma skyldi en hef samt sem áður ekki alveg viljað gefa það út opinberlega.

Þessi ákvörðun hefur því átt sér langan aðdraganda en á sama tíma hefur þetta líka legið fyrir núna í einhvern tíma. Ég er búinn að vera lengi að í íþróttinni, það er margt annað í gangi hjá mér á öðrum vígstöðvum, og þetta er því orðið ágætt ef svo má segja. Ég er mjög ánægður með minn tíma og feril í fótboltanum og ég kveð hann bæði saddur og sæll,“ sagði Hannes.

Fann ekki neistann

Framtíð Hannesar hefur verið mikið í umræðunni allt frá því hann rifti samningi sínum við Valsmenn en til stóð að hann yrði í herbúðum Vals út keppnistímabilið 2022.

„Þegar allt kemur til alls þá gaf ég þessu eins mikinn séns og ég gat. Ég hef verið í miklu sambandi við vini míni í Leikni undanfarnar vikur og það er mjög spennandi verkefni í gangi í Breiðholtinu. Ég fór á nokkrar æfingar hjá þeim og reyndi eins og ég gat að kveikja þennan margfræga neista en því miður gekk það ekki eftir. Ég fann einfaldlega ekki ástríðuna sem hefur verið svo stór hluti af mínum ferli í gegnum tíðina og það var því fátt annað í stöðunni en að kalla þetta gott.

Vissulega átti sér stað ákveðin stefnubreyting hjá mér þegar ég hætti í Val enda var ég búinn að gera ráð fyrir því að klára samninginn minn á Hlíðarenda og ég var fullur eldmóðs fyrir komandi tímabili. Við vildum bæta upp fyrir síðasta tímabil þar sem við misstum mótið úr höndunum á okkur á síðustu metrunum og ég ætlaði mér að gefa allt í síðasta árið. Málin þróuðust hins vegar á annan veg en á sama tíma stóð það aldrei til hjá mér að framlengja ferilinn fram yfir komandi keppnistímabil.“

Reynslan gæti nýst vel

Markvörðurinn var meðal annars orðaður við endurkomu í KR og Fram þegar hann yfirgaf Hlíðarenda.

„Umhverfið á Íslandi er bara þannig að flest liðin í efri hluta deildarinnar eru vel sett þegar kemur að markmannsstöðunni og þau eru með menn á samningum nú þegar. Síminn var þess vegna ekkert rauðglóandi þegar það varð ljóst að ég yrði ekki áfram á Hlíðarenda. Það áttu sér stað einhver samtöl og pælingar en eins og ég kom inn á áðan var ég í langmestum samskiptum við Leiknismenn. Ég hefði klárlega haft gaman af því að loka hringnum í Breiðholtinu og það hefði verið ákveðin rómantík líka sem hefði fylgt því.

Markmannshanskarnir eru hins vegar komnir á hilluna en það kitlar samt aðeins að reyna fyrir sér sem miðjumaður eða framherji í 4. deildinni. Mig hefur lengi langað að prófa mig sem útileikmann og það getur vel verið að maður láti verða af því í sumar,“ sagði Hannes í léttum dúr.

„Eins og staðan er núna þá er ég ekki á leiðinni í þjálfun enda fylgir því mikil skuldbinding. Kvikmyndabransinn gengur vel og það er nóg að gera hjá mér í vinnunni en það er klárlega eitthvað sem ég hef áhuga á til framtíðar litið, sérstaklega ef horft er til landsliðanna, þar sem ég tel að reynsla mín gæti nýst vel.“

Eitt augljóst svar

Hannes upplifði mörg frábær augnablik með íslenska karlalandsliðinu á ferlinum en hann varði til að mynda vítaspyrnu frá Lionel Messi í leik Íslands og Argentínu í D-riðli HM 2018 í Moskvu.

„Það eru nokkur atvik sem standa upp úr með landsliðinu sem erfitt er að gera upp á milli. Ég er með eitt augljóst svar fyrir þig en ég ætla ekki að nefna það sérstaklega því það er einfaldlega of augljóst. Sigurmarkið gegn Austurríki á Evrópumótinu í Frakklandi í París er klárlega einn af hápunktunum enda var það ævintýri líkast. Að komast í 16-liða úrslit á EM á þennan hátt verður ekki betra eða sætara.

Augnablikin sem mér þykir hins vegar vænst um eru sigurleikirnir gegn Króatíu og Tékklandi á fallegum sumarkvöldum fyrir fullum Laugardalsvelli. Við vorum í mikilli toppbaráttu í okkar riðlum á þessum tímum og stemningin á vellinum og í þjóðfélaginu gagnvart liðinu í raun ólýsanleg. Mér hlýnar mikið um hjartaræturnar við að rifja þetta allt saman upp.“

Allt tekur enda

Markvörðurinn horfir sáttur til baka og sér ekki eftir ákvörðun sinni um að kalla þetta gott.

„Það er engin spurning að það er ýmislegt sem ég á eftir að sakna við fótboltann. Ég sakna klefans nú þegar en á sama tíma sakna ég þess ekki að mæta á æfingar. Til þess að vera í fótbolta þarftu að vera í honum af bæði lífi og sál og ef maður finnur ekki löngunina til að mæta á æfingar þá er þetta erfitt. Það fylgir því mikil skuldbinding að vera í fótbolta og það er ein af ástæðum þess að ég er að hætta þessu.

Þú þarft að mæta alla daga og helgar á æfingar og það er lítið sem maður getur gert með fjölskyldunni. Það er ekkert ólíklegt að söknuðurinn muni gera vart við sig þegar líða fer að sumri og þegar tímabilið hefst en ég hef tekið mína ákvörðun og allt tekur einhvern tímann enda,“ bætti Hannes við í samtali við Morgunblaðið.