[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Vafalítið notar hann hendur, huga og ráð mannanna til þess; allra þeirra sem vilja ljá mannúð og friði krafta sína, orku og athygli.

Úkraína kallar á hjálp, ofbeldismaðurinn veður uppi og það duga engar fortölur á hann, engin rök. Fréttamyndir af framferði innrásarhersins vekja óhug og hrylling; eru leikskólar, munaðarleysingjahæli og fæðingardeildir jafngild skotmörk? Lengra verður varla komist í grimmdinni.

Óverðskulduð kvöl hins undirokaða er brennandi spurning í trúarhugsun kristninnar.

Í atburðum föstudagsins langa erum við minnt á ofbeldið sem harðstjórnin beitir, þjáningu hins saklausa og hvar þú ætlar að staðsetja þig á þessum pólum. Tekur þú þér stöðu með hinum undirokaða eða leggstu flatur undir ofríkið? Og hvað vilt þú gera í því? Stríðið í Úkraínu er ekki einkamál Rússa og Úkraínumanna; þessi saga fjallar líka um þig.

Fá önnur ráð en að taka höndum saman

Ég ætla mér ekki þá dul að halda að ég hafi einhver svör eða bjargráð sem virka til að stöðva stríðið. Ekki nema að sameinast milljónum manna – jafnvel hundruðum milljóna – í bæn um að Drottinn stöðvi áform illvirkjanna og veiti friðinum framgang.

Vafalítið notar hann hendur, huga og ráð mannanna til þess; allra þeirra sem vilja ljá mannúð og friði krafta sína, orku og athygli. Við getum gert margt til að styrkja frelsisbaráttu Úkraínu og það munar um allt. Fjölmörg samtök á Íslandi, m.a. Hjálparstarf kirkjunnar, hafa skipulagt aðstoð og öll getum við tekið þátt þar. Það munar um hvert handtak. Að sýna samstöðu og biðja.

Með heitri bæn fyrir friði í frjálsri Úkraínu.

Höfundur er sóknarprestur í Dómkirkjunni.

Höf.: Sveinn Valgeirsson