Ana De Armas varð ástfangin.
Ana De Armas varð ástfangin. — AFP/Valerie MACON
Ást „Þegar maður er að gera mynd og leikararnir verða ástfangnir þá leggst maður bara á bæn og vonar að upp úr slitni áður en tökum lýkur,“ segir bandaríski kvikmyndaleikstjórinn Adrian Lyne í samtali við breska blaðið The Independent en...
Ást „Þegar maður er að gera mynd og leikararnir verða ástfangnir þá leggst maður bara á bæn og vonar að upp úr slitni áður en tökum lýkur,“ segir bandaríski kvikmyndaleikstjórinn Adrian Lyne í samtali við breska blaðið The Independent en aðalleikararnir í nýjustu mynd hans, Ben Affleck og Ana De Armas, fóru að rugla saman reytum meðan á gerð myndarinnar stóð. Hann viðurkennir þó að neistaflugið á milli Affleck og De Armas hafi komið sér vel enda er myndin, Deep Water, erótískur sálfræðitryllir, rétt eins og frægasta mynd Lynes, Fatal Attraction. Sambandi leikaranna tveggja er lokið í dag og víst litlir kærleikar með þeim.