Er goðsögnin Dolly Parton á leiðinni í rokkið?
Er goðsögnin Dolly Parton á leiðinni í rokkið? — AFP/Bridget Bennett
Rokk Nancy Wilson, oftast kennd við rokkhljómsveitina Heart, hefur áhuga á því að semja rokkplötu með kántrídrottningunni Dolly Parton. Hún lýsti þessu yfir í samtali við bandarísku útvarpsstöðina 95.
Rokk Nancy Wilson, oftast kennd við rokkhljómsveitina Heart, hefur áhuga á því að semja rokkplötu með kántrídrottningunni Dolly Parton. Hún lýsti þessu yfir í samtali við bandarísku útvarpsstöðina 95.5 KLOS í vikunni í tilefni af því að Parton hafnaði tilnefningu í Frægðargarð rokksins (Rock And Roll Hall Of Fame); telur sig ekki þess umkomna. „Það var mikil reisn yfir því hjá henni [að draga sig út] og fær mig til að vilja semja rokkplötu með henni,“ sagði Wilson um hina 76 ára gömlu Parton. „Ég ætti að slá á þráðinn til hennar. Hún hefur samið sum af bestu lögum sögunnar. Hún gæti þetta.“