Broskall. S-Allir Norður &spade;96 &heart;G1093 ⋄G8762 &klubs;G2 Vestur Austur &spade;KD853 &spade;G42 &heart;D7 &heart;ÁK42 ⋄543 ⋄K10 &klubs;D106 &klubs;9875 Suður &spade;Á107 &heart;865 ⋄ÁD9 &klubs;ÁK43 Suður spilar 1G.

Broskall. S-Allir

Norður
96
G1093
G8762
G2

Vestur Austur
KD853 G42
D7 ÁK42
543 K10
D106 9875

Suður
Á107
865
ÁD9
ÁK43

Suður spilar 1G.

Suður opnar á sterku grandi, allir passa og vestur kemur út með spaðafimmu, fjórða hæsta. Suður dúkkar spaðann tvisvar, fær þriðja slaginn á spaðaás og spilar tíguldrottningu. Austur drepur og spilar væntanlega litlu hjarta. Eða hvað – blasir það við?

Síður en svo. Ef suður á hjartadrottningu væri hlálegt að spila hjarta undan ás-kóng. Slíkt færir sagnhafa sjö slagi á silfurfati ef hann á eitthvað þessu líkt: Á10x Dxx ÁDx Á10xx. Neibb. Austur getur með engu móti séð fyrir sér besta framhaldið út frá eigin spilum og þarf því hjálp frá makker. Vestur verður að vísa veginn. En hvernig?

Með því að spila spaðaáttu í þriðja slag frá K83. Kóngurinn (hæsta spilið) væri kall í hjarta, þristurinn (lægsta spilið) laufkall, en áttan (miðjuspilið) brosir í báðar áttir.