<strong>Hvítur á leik </strong>
Hvítur á leik
1. d4 f5 2. Rc3 d5 3. Bg5 c6 4. Dd3 g6 5. h4 Bg7 6. 0-0-0 Rf6 7. f3 Dc7 8. Rh3 Be6 9. Bf4 Dd7 10. Dd2 Ra6 11. Rf2 0-0-0 12. e3 Rc7 13. Rd3 Bf7 14. Rc5 De8 15. R3a4 Rd7 Staðan kom upp í 1.

1. d4 f5 2. Rc3 d5 3. Bg5 c6 4. Dd3 g6 5. h4 Bg7 6. 0-0-0 Rf6 7. f3 Dc7 8. Rh3 Be6 9. Bf4 Dd7 10. Dd2 Ra6 11. Rf2 0-0-0 12. e3 Rc7 13. Rd3 Bf7 14. Rc5 De8 15. R3a4 Rd7

Staðan kom upp í 1. deild Íslandsmóts skákfélaga sem lauk fyrir skömmu í Egilshöll í Reykjavík. Bjarni Sæmundsson (1.829) hafði hvítt gegn Sigurði Ingasyni (1.781) . 16. Da5! og svartur gafst upp enda kóngsstaðan að hruni komin, t.d. eftir 16.... e5 17. Dxa7. Þriðja mótið í heimsbikarmótaröð FIDE hefst þriðjudaginn 22. mars næstkomandi. Ólympíuskákmótið í ár verður ekki haldið í Moskvu í Rússlandi en stefnt er að því að halda það í Chennai á Indlandi í lok júlí. Íslandsmót stúlknasveita fer fram í dag. Skákdeild KR er með mót sem hefst kl. 10.30 í dag. Nánari upplýsingar um þessa skákviðburði og fleiri til má finna á skak.is og fide.com.