Gloverinn vel til hafður að vanda.
Gloverinn vel til hafður að vanda. — AFP/Jean-Baptiste Lacroix
Loksins Hinir vinsælu gamandramaþættir Atlanta, í leikstjórn Donalds Glovers, snúa loks aftur á FX í Bandaríkjunum í lok mánaðarins eftir fjögurra ára hlé.
Loksins Hinir vinsælu gamandramaþættir Atlanta, í leikstjórn Donalds Glovers, snúa loks aftur á FX í Bandaríkjunum í lok mánaðarins eftir fjögurra ára hlé. Sem fyrr eru í forgrunni rapparinn Alfred „Paper Boi“ Miles (Brian Tyree Henry), umboðsmaður hann (Glover sjálfur), og hinn tryggi aðstoðarmaður Darius (LaKeith Stanfield). Þegar við skildum við þá var Alfred á leið í Evróputúr og fróðlegt verður að sjá hvernig fer en þessi þriðja sería verður sú síðasta.