Pamela di Sensi
Pamela di Sensi
Um helgina lýkur í Hafnarfirði tónlistarhátíð með yfirskriftina WindWorks með þrennum tónleikum. Í dag, laugardag, verða tvennir þar sem klarinett- og flaututónar eiga að fylla Pakkhúsið.

Um helgina lýkur í Hafnarfirði tónlistarhátíð með yfirskriftina WindWorks með þrennum tónleikum.

Í dag, laugardag, verða tvennir þar sem klarinett- og flaututónar eiga að fylla Pakkhúsið. Klukkan 14 leika Hafdís Vigfúsdóttir á flautu og Grímur Helgason á klarinett fjölbreytta tónlist eftir Martial Nardeau, Elínu Gunnlaugsdóttur og Jean Rivier. Seinni tónleikarnir verða klukkan 15. Þar kemur fram Aulos Flute Ensemble með tónlist Hildigunnar Rúnarsdóttur, K. Fukushima, Sunnu Friðjónsdóttur og loks verður frumflutt verk fyrir flautu eftir Fabio Mengozzi sem samið er sérstaklega fyrir Pamelu De Sensi.

Á morgun, sunnudag, verða tónleikar kl. 14 í Bookless Bungalow og mun Aulos Flute Ensemble meðal annars frumflytja verk eftir Robin Lilja, tónskáld frá Svíþjóð.