Hljómsveit bassaleikarans Sigmars Þórs Matthíassonar, Meridian Metaphor, kemur fram á tónleikum Jazzklúbbsins Múlans á Björtuloftum í Hörpu í kvöld, miðvikudagskvöld, kl. 20.
Hljómsveit bassaleikarans Sigmars Þórs Matthíassonar, Meridian Metaphor, kemur fram á tónleikum Jazzklúbbsins Múlans á Björtuloftum í Hörpu í kvöld, miðvikudagskvöld, kl. 20. Hljómsveitin mun meðal annars leika tónlistina sem er á nýjustu hljómplötu Sigmars sem er samnefnd sveitinni og hefur hlotið lofsamlega dóma en hún er samin undir áhrifum frá austrænni heimstónlist. Ásamt Sigmari koma fram Haukur Gröndal, Ásgeir Ásgeirsson, Ingi Bjarni Skúlason og Matthías MD Hemstock.