London Sveindís Jane Jónsdóttir gæti spilað gegn Arsenal.
London Sveindís Jane Jónsdóttir gæti spilað gegn Arsenal. — Morgunblaðið/Eggert
Útlit er fyrir að Sveindís Jane Jónsdóttir landsliðskona í knattspyrnu geti leikið með þýska toppliðinu Wolfsburg þegar það mætir enska toppliðinu Arsenal í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í London í kvöld.
Útlit er fyrir að Sveindís Jane Jónsdóttir landsliðskona í knattspyrnu geti leikið með þýska toppliðinu Wolfsburg þegar það mætir enska toppliðinu Arsenal í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í London í kvöld. Sveindís hefur misst af tveimur síðustu leikjum Wolfsburg vegna meiðsla en fór með liðinu til London í gær. Leikið verður á Emirates-leikvanginum, sem rúmar 60 þúsund áhorfendur, en Arsenal leikur vanalega heimaleikina á Meadow Park í Borehamwood en hann rúmar fimm þúsund áhorfendur.