Varnaræfing Norður-Víkingur fer fram hér á landi fyrri hlutann í apríl.
Varnaræfing Norður-Víkingur fer fram hér á landi fyrri hlutann í apríl. — Morgunblaðið/ÞÖK
Varnaræfingin Norður-Víkingur 2022 fer fram á Íslandi og á hafinu í kringum landið dagana 2.-14. apríl. Megintilgangur æfingarinnar er að æfa varnir sjóleiða umhverfis Ísland og mikilvægra öryggisinnviða en einnig leit og björgun á sjó og landi.

Um er að ræða reglubundna tvíhliða varnaræfingu Íslands og Bandaríkjanna með þátttöku fleiri vina- og bandalagsríkja, að því er fram kemur á vef Stjórnarráðsins.

Varnaræfingin Norður-Víkingur hefur verið haldin reglulega frá 1982 en hún grundvallast á ákvæðum varnarsamnings Íslands og Bandaríkjanna frá 1951. Til stóð að halda hana vorið 2020 en vegna heimsfaraldursins var þeim áformum slegið á frest.

Tilgangur æfingarinnar er meðal annars að æfa varnir sjóleiðanna í kringum landið og varnir mikilvægra mannvirkja og öryggisinnviða, til dæmis fjarskiptakapla. Þá æfa þátttakendur leit og björgun almennra borgara og taka Landhelgisgæslan og lögreglan þátt í þeim hluta. Alls taka um 700 manns þátt í æfingunni. Gert er ráð fyrir að þegar æfingunni er lokið komi tvö til fjögur herskip til hafnar í Reykjavík og áhafnir þeirra fari í stutta stund í land.