Lettland Axel Óskar hefur verið orðaður við lið í Noregi og Svíþjóð.
Lettland Axel Óskar hefur verið orðaður við lið í Noregi og Svíþjóð. — Ljósmynd/Riga FC
Knattspyrnumaðurinn Axel Óskar Andrésson hefur rift samningi sínum við lettneska úrvalsdeildarfélagið Riga. Það er fótbolti.net sem greinir frá þessu en Axel gekk til liðs við lettneska félagið frá Viking í Noregi í febrúar 2021.
Knattspyrnumaðurinn Axel Óskar Andrésson hefur rift samningi sínum við lettneska úrvalsdeildarfélagið Riga. Það er fótbolti.net sem greinir frá þessu en Axel gekk til liðs við lettneska félagið frá Viking í Noregi í febrúar 2021. Axel, sem er 24 ára gamall, er uppalinn hjá Aftureldingu en hann hefur leikið með Reading, Bath City og Torquay United á Englandi ásamt Viking og Riga á atvinnumannsferli sínum. Fótbolti.net greinir frá því að félög í Noregi og Svíþjóð hafi áhuga á miðverðinum.