Edition Allt fer á fullt á hótelinu í sumar.
Edition Allt fer á fullt á hótelinu í sumar. — Morgunblaðið/Eggert
„Ferðaþjónustan er að fara á flug og það er mikill áhugi á landinu,“ segir Ninna Hafliðadóttir, markaðs- og upplýsingastjóri lúxushótelsins The Reykjavík Edition við Hörpu.

„Ferðaþjónustan er að fara á flug og það er mikill áhugi á landinu,“ segir Ninna Hafliðadóttir, markaðs- og upplýsingastjóri lúxushótelsins The Reykjavík Edition við Hörpu. Hótelið auglýsir um þessar mundir eftir 34 nýjum starfsmönnum, mörgum í stjórnunarstöður. Bókunarstaða þess er sögð góð og bráðlega verða öll herbergi tekin í notkun. Þá verður opnaður veitingastaður á þakverönd og næturklúbbur á hótelinu. 2