Áhrifavaldurinn Camilla Rut og útvarpskonan Kristín Sif hafa ákveðið að hætta að ganga í nærbuxum.
Áhrifavaldurinn Camilla Rut og útvarpskonan Kristín Sif hafa ákveðið að hætta að ganga í nærbuxum. Ástæðan fyrir þessari ákvörðun hefur að gera með almennt heilbrigði píkunnar en Camilla Rut fór yfir þessi mál í Ísland vaknar á K100 á mánudag með Kristínu, Ásgeiri Páli og Jóni Axel, þáttastjórnendum.
Sagðist hún hafa tekið ákvörðun um þetta í ræktinni eftir að hún var næstum hætt við að gera æfingarnar vegna „óþægilegrar brókar“.
Jón Axel átti erfitt með sig meðan á umræðunum stóð en hlusta má á umræður hennar og Kristínar á K100.is.