Veisla Fálkamóðir matar þrjá sísvanga unga sína á hreiðri á Norðurlandi.
Veisla Fálkamóðir matar þrjá sísvanga unga sína á hreiðri á Norðurlandi. — Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Fjallað er um líftölur íslenskra fálka í nýlegri grein í vísindatímaritinu PeerJ eftir vistfræðingana Frédéric Barraquand og Ólaf K. Nielsen.

Fjallað er um líftölur íslenskra fálka í nýlegri grein í vísindatímaritinu PeerJ eftir vistfræðingana Frédéric Barraquand og Ólaf K. Nielsen. Greint er frá þessu á heimasíðu Náttúrufræðistofnunar og segir þar að þetta sé í fyrsta sinn sem mat er lagt á lífslíkur fálka hér á landi en rannsóknirnar byggðust á merkingum og endurheimtum merktra fugla.

Niðurstöður sýna að lífslíkur fullorðinna fálka voru að meðaltali 83% en 40% hjá ungum fuglum. Mikill breytileiki er í því hvað fuglarnir verða gamlir, þeir sem lengst lifa verða um það bil 15 ára gamlir en reiknaður meðallífaldur er einungis um átta ár. Þetta skýrist mögulega af tíðum dauðsföllum af mannavöldum en t.d. var fjórðungur röntgenmyndaðra fálkahræja með högl í sér. Lífslíkur ungra fugla eru um helmingi lægri en lífslíkur fullorðinna fugla og það kom á óvart í rannsókninni að lífslíkur ungra fálka virðast hvorki tengjast veðri né þéttleika rjúpunnar, segir á heimasíðu Náttúrufræðistofnunar.

Þar er rakið að fálkinn er ránfugl, sem á heimkynni á norðurhjaranum hringinn í kringum pólinn. Á liðnum öldum voru fálkar fluttir út frá Íslandi til meginlands Evrópu, og jafnvel lengra. Ytra voru fálkarnir tamdir og aðalsmenn og konungar notuðu þá til fuglaveiða. Tölur frá 18. öld um útflutta fálka frá Íslandi sýna að fálkastofninn reis og hneig og stofnsveiflan tók um 10 ár.

Stofnsveiflur fálka og rjúpu

Rannsóknir á Norðausturlandi frá 1981 til dagsins í dag sýna að fálkastofninn sveiflast enn. Stofnsveiflur fálka og rjúpu eru nátengdar og fálkinn er einn af þeim náttúrulegu þáttum sem móta stofnsveiflu rjúpunnar.

Þrátt fyrir þessa vitneskju voru grunnþættir eins og lífslíkur fálka óþekktir, ekki aðeins á Íslandi heldur öllu útbreiðslusvæðinu, segir í útdrætti um rannsóknina.