Ólígarkinn Roman Abramovitsj
Ólígarkinn Roman Abramovitsj
Tvær glæsisnekkjur rússneska ólígarkans og milljarðamæringsins Romans Abramovitsj eru komnar í skjól í hafnarborgum í Tyrklandi.
Tvær glæsisnekkjur rússneska ólígarkans og milljarðamæringsins Romans Abramovitsj eru komnar í skjól í hafnarborgum í Tyrklandi. Nýtur auðkýfingurinn þess að Tyrkir taka ekki þátt í refsiaðgerðum vestrænna ríkja gegn Rússlandi vegna innrásarinnar í Úkraínu. Eru þeir þó aðilar að NATO en meta meira efnahagsþýðingu góðra samskipta við Rússa. Mótmælendur hafa safnast saman við snekkjurnar með úkraínska fána og mótmælt komu þeirra til landsins. Stórar eignir Abramovitsj í Bretlandi eru honum óaðgengilegar vegna refsiaðgerða.