Ánægður Úlfar Hinriksson segir að nú snúist bíladellan fyrst og fremst um viðskiptin.
Ánægður Úlfar Hinriksson segir að nú snúist bíladellan fyrst og fremst um viðskiptin. — Morgunblaðið/Árni Sæberg
Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Sennilega hefur enginn starfað lengur við bílasölu en Úlfar Hinriksson, framkvæmdastjóri og einn eigenda Suzuki bíla hf., en hann hefur unnið á þessum vettvangi í ríflega 52 ár.

Steinþór Guðbjartsson

steinthor@mbl.is

Sennilega hefur enginn starfað lengur við bílasölu en Úlfar Hinriksson, framkvæmdastjóri og einn eigenda Suzuki bíla hf., en hann hefur unnið á þessum vettvangi í ríflega 52 ár.

Um áramótin 1969-70 byrjaði Úlfar að vinna hjá Sveini Egilssyni hf. í hlutastarfi með námi í skóla. Fljótlega var hann kominn í fullt starf hjá fyrirtækinu og þegar bílaumboðin voru seld keyptu nokkrir starfsmenn með Úlfar og Þorberg Guðmundsson í fararbroddi Suzuki-umboðið, stofnuðu Suzuki bíla hf. 1989 og hófu rekstur í gamla Ford-húsinu í Skeifunni 17, þar sem starfsemin hefur verið síðan.

Til að byrja með unnu átta manns við sölu á bílum og varahlutum, en nú eru um 25 starfsmenn hjá Suzuki og þar af þrír sem hafa verið í hópnum frá byrjun. „Fyrstu 25 árin var sáralítil eða engin starfsmannavelta en síðan hefur fólk hætt vegna aldurs,“ segir Úlfar.

Ýmsar ástæður liggja að baki starfsvali og hún er nærtæk hjá Úlfari. „Það var bara bíladella,“ segir hann og bætir við að hann hafi eignast fyrsta bílinn skömmu eftir að hann hafi tekið bílprófið. „Ég var mikill bílaáhugamaður á þeim árum og hún hefur enst að hluta til en á annan hátt. Ástríðan er öðruvísi en áður og snýst núna fyrst og fremst um viðskiptin.“

Skemmtilegur bransi

Úlfar segir að bílabransinn sé mjög skemmtilegur. Stöðugt komi nýjar tegundir á markað, ýmsar nýjungar og svo framvegis. „Þó bílar hafi í grunninn verið mjög svipaðir í yfir 100 ár hefur þróunin verið stöðug, alltaf verið eitthvað nýtt í gangi.“ Eins hafi verið mikil áskorun að takast á við þær miklu sveiflur sem hafi verið í bílasölunni á Íslandi. „Þetta eru mjög lifandi viðskipti og starfinu fylgja mikil samskipti við fólk, sem er mjög skemmtilegt.“

Líkamsrækt hefur lengst af verið ríkur þáttur í daglegu amstri Úlfars. „Ég hef verið með kort í líkamsræktarstöð í yfir 40 ár, var virkur í langhlaupum í yfir 20 ár og þegar ég fór að gefa eftir í hlaupunum skipti ég yfir í golfið. Ég fer gjarnan í ræktina í hádeginu og reyni að hreyfa mig eitthvað á hverjum degi.“

Hann þótti reyndar mjög liðtækum í hlaupum, þó hann geri lítið úr því. „Ég var meðallanghlaupari, hljóp reglulega maraþon, hálfmaraþon og Laugavegshlaup. Hleyp reyndar ennþá en er hættur að hlaupa á malbiki, held mig við utanvegahlaup.“

Þórir Jónsson, eigandi Sveins Egilssonar hf., byrjaði að selja Suzuki-bíla hérlendis 1981. Salan hefur margfaldast í áranna rás, en lengi hafa fimm til sex tegundir verið á boðstólum og nýlega byrjaði fyrirtækið að selja kínverska rafmagnsbíla. Alltaf eitthvað nýtt og spennandi, eins og Úlfar orðar það, og hann segist ekkert vera á förum. „Ég sé enga ástæðu til þess að hætta á meðan ég hef gaman af þessu og heilsan er í lagi.“